Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Harrý Bretaprins er æfur út í Donald Trump

„Hefur nokkur verið fáfróð­ari í sögu Banda­ríkj­anna?“

Harrý Bretaprins er æfur út í Donald Trump
Harrý Breta­prins Prinsinn umdeildi er afar ósáttur við Trump Mynd: AFP

Harrý Breta­prins er meðal þeirra sem er æfur út í Banda­ríkja­for­seta vegna ummæla sem hann lét falla í við­tali við Fox News.

Donald Trump segir að Banda­ríkin hafi aldrei þurft á hjálp Breta að halda í stríð­inu í Afganistan. Ummælin lét hann falla í við­tali við Fox News á fimmtu­dag, þar sem hann sagði jafn­framt að hann treysti því ekki að NATO myndi „vera til staðar“ ef Banda­ríkin þyrftu á varn­ar­sam­starf­inu að halda.

Á sama tíma full­yrti Trump að Banda­ríkin hefðu aldrei þurft hern­að­ar­að­stoð frá neinu NATO-ríki.

„Þeir segja að þeir hafi sent her­menn til Afganistan. Það gerðu þeir, þeir héldu sig aðeins aftar, aðeins fyrir aftan víg­lín­una,“ sagði for­set­inn í við­tal­inu.

Ummælin hafa vakið mikla reiði meðal stjórn­valda og sam­taka fyrr­ver­andi her­manna, einkum í Bret­landi, sem sendi fjöl­mennt her­lið til stuðn­ings Banda­ríkj­unum í stríð­inu í Afganistan. Alls féllu 457 breskir her­menn í aðgerð­unum.

Keir Starmer: „Móðgandi og viðbjóðsleg ummæli“

For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Keir Starmer, sagði í gær að orð Trumps væru „móðg­andi“ og „hreint út sagt við­bjóðs­leg“.

„Ég er ekki hissa á því að þau hafi valdið miklum sárs­auka hjá ást­vinum þeirra sem féllu eða slös­uð­ust,“ sagði Starmer í sam­tali við Sky News og bætti við að hann teldi Trump eiga að biðj­ast afsök­unar.

Stuðn­ings­maður Trumps, Nigel Farage, leið­togi hægriöfga­flokks­ins Reform UK, gagn­rýndi einnig for­set­ann.

„Donald Trump hefur rangt fyrir sér. Fyrir 20 árum börð­ust vopn­aðar sveitir okkar hug­rakkar hlið við hlið með Banda­ríkj­unum í Afganistan,“ skrif­aði Farage á X.

Harrý Breta­prins, sem sjálfur barð­ist í Afganistan, sagði í yfir­lýs­ingu að fórnir Breta ættu skilið að vera ræddar „af virð­ingu“.

„Ég þjón­aði þar. Ég eign­að­ist vini fyrir lífs­tíð þar. Og ég missti vini þar,“ skrif­aði hann og bætti við að hann teldi Trump skulda afsök­un­ar­beiðni.

Gagnrýni víða um Evrópu

Gagn­rýnin hefur einnig breiðst út utan Bret­landseyja. Danski þing­mað­ur­inn Rasmus Jarlov, for­maður varn­ar­mála­nefndar danska þings­ins, svar­aði Trump með mynd­bandi af dönskum her­mönnum í bar­dögum gegn Tali­bönum í Afganistan.

Danmörk missti 44 her­menn í stríð­inu, sem er eitt hæsta hlut­fall mann­falls miðað við íbúa­fjölda meðal NATO-ríkja sem tóku þátt í aðgerð­inni.

„Hefur nokkur verið fáfróð­ari í sögu Banda­ríkj­anna?“ skrif­aði Jarlov á X.

For­sæt­is­ráð­herra Póllands, Donald Tusk, gagn­rýndi einnig ummæli Trumps.

„22. des­em­ber 2011 var ég við­staddur kveðju­at­höfn fyrir fimm fallna pólska her­menn í Ghazni í Afganistan. Banda­rískir liðs­for­ingjar sem voru með mér þá sögðu að Banda­ríkin myndu aldrei gleyma pólsku hetj­unum,“ skrif­aði Tusk á X.

„Kannski geta þeir minnt Trump for­seta á þá stað­reynd,“ bætti hann við.

Margir stjórn­mála­menn og aðstand­endur fall­inna her­manna þrýsta nú á Keir Starmer að krefj­ast afsök­un­ar­beiðni. Í upp­töku, þar sem hann hljómar „sann­ar­lega reiður“ að sögn BBC, segir hann:

„Ummæli Trump for­seta eru móðg­andi og hreint út sagt við­bjóðs­leg. Hefði ég sagt eitt­hvað álíka, hefði ég hik­laust beðist afsök­unar.“

Hvíta húsið hefur hins vegar svarað gagn­rýn­inni með því að segja að „Trump for­seti hefur rétt fyrir sér“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta