Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, undirrituðu í gær samning við Gló um stuðning við fötluð börn og ungmenni í sumar en greint er frá þessu í tilkynningu frá yfirvöldum.
Markmiðið er að draga úr félagslegri einangrun fatlaðra barna og ungmenna og styðja við fjölskyldur þeirra.
Mennta- og barnamálaráðuneytið ásamt félags- og húsnæðismálaráðuneytinu hafa stutt við verkefni Glóar er lúta að sumardvöl fatlaðra barna og ungmenna undanfarin ár. Verkefnin voru upphaflega styrkt í heimsfaraldri COVID-19 með góðum árangri.
Stuðningurinn nemur 58 m.kr.


























Athugasemdir