Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fjórða valdið dó í Covid”

Að sögn Haraldar Erlends­sonar geð­læknis gefur margt til kynna að hug­víkk­andi efni geti markað tíma­mót í geð­lækn­is­fræði.

„Fjórða valdið dó í Covid”
Haraldur Erlends­son Haraldur er nýjasti gestur Sölva Mynd: YouTube-skjáskot

Haraldur Erlends­son geð­læknir segir mjög margt benda til að með­ferðir með hug­víkk­andi efni gætu orðið stærsta bylt­ing geð­lækn­is­fræð­innar í ára­tugi. Haraldur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir geð­heil­brigð­is­kerfi vest­ur­landa löngu sprungið og við verðum að fara að finna nýjar lausnir:

„Við búum við ákveðið fram­leiðslu­kerfi þar sem við eigum að vera í stöðugri neyslu og núvit­und og ham­ingja hefur orðið að auka­at­riði. Í mennta­kerf­inu okkar er verið að búa til ein­stak­ling sem kann eitt­hvað til að passa sem ein­ing inn í kerfið, í stað þess að skoða hæfi­leika hans og leggja áherslu á að nýta þessa hæfi­leika og sigra sína van­kanta. Það er grund­völl­ur­inn að ham­ingj­unni og ham­ingjan skiptir auð­vitað miklu meira máli í veg­ferð lífs­ins en að geta státað af ein­hverjum gráðum eða eiga flottan bíl og hús. Menn­ingin okkar á vest­ur­löndum er í drifin að því að þræla og kaupa. Þetta er snilld­ar­hug­mynd hjá þeim sem bjuggu til þetta módel, sem hefur rekið okkur áfram í lengri tíma. Það er búið að búa til fram­leiðslu-ein­ingu og neyslu-ein­ingu úr sér­hverjum ein­stak­lingi. Við þurfum á ein­hvern hátt að stíga til for­tíðar og breyta þessu. Allar tölur benda til þess að geð­rænni heilsu sé að hraka gríð­ar­lega á Vest­ur­löndum og við séum að gera eitt­hvað rangt. Við höfum verið föst í ofurá­herslu á fræðin, í stað þess að leggja líka áherslu á and­ann og hluti sem er stundum erfitt að mæla.“

Sprungin geðheilbrigðisþjónusta

Haraldur bendir í þætt­inum á það hvert við erum komin þegar kemur að geð­heil­brigði og geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á vest­ur­löndum. Þar virð­ist flest benda til að allt sé gjör­sam­lega sprungið:

„Í hinum vest­ræna heimi er staðan núna sú að geð­heil­brigð­is­kerfið er löngu sprungið. Bið eftir þjón­ustu geð­læknis getur verið allt að 10-30 árum í verstu til­vikum ef þú glímir ekki við bráða­vanda. Það er fólk úti í sam­fé­lag­inu sem er búið að bíða í áraraðir og jafn­vel ára­tugi eftir að fá þjón­ustu. Það er auð­vitað alltaf spurn­ing hvað eru alvar­leg geð­ræn vanda­mál og hver eru minni­háttar og þess vegna spurn­ing um hver á að hafa for­gang að þjón­ust­unni. Hér á Íslandi er eins og ann­ars staðar verið að sinna veikasta fólk­inu, en aðrir mæta afgangi. Vægari kvillar eins og kvíði, ADHD, væg­ari útgáfa af þung­lyndi og fleira geta mætt gríð­ar­legum bið­tíma. Þessa þjón­ustu er bara orðið gríð­ar­lega erfitt að fá ef þú ert ekki þegar kom­inn að inni í kerf­inu,” segir Haraldur og heldur áfram:

„Engin geð­heilsu­þjón­usta mun ráða við að sinna vand­anum ef svona heldur áfram, af því að hann er orð­inn svo útbreiddur og mik­ill. Vinnu­fram­lag í þjóð­fé­lögum í hinum vest­ræna heimi er að með­al­tali skert um 30% vegna geð­rænna vanda­mála og vanda­málin virð­ast bara vera að aukast, þannig að það er aug­ljóst að það þarf að finna nýjar leiðir til að takast á við þann far­aldur sem er í gangi. En það er aug­ljós­lega eitt­hvað mikið að í því hvernig við lifum lífi okkar miðað við það hve hratt lík­am­legri og geð­rænni heilsu okkar er að hraka.”

Bylting framundan

Eitt af því sem Haraldur bindur vonir við að muni geta orðið bylt­ing í geð­rænni heilsu eru hug­víkk­andi efni og hann hefur legið yfir rann­sóknum sem hafa verið fram­kvæmdar á und­an­förnum árum og er sér­legur áhuga­maður um hvert sú þróun muni fara:

„Nú er mjög margt sem bendir til að hug­víkk­andi efni gætu átt eftir að verða stærsta bylt­ing geð­lækn­is­fræð­innar í ára­tugi. Á margan hátt gæti þetta líka verið ein stærsta bylt­ing í lyf­lækn­ingum yfir höfuð í langan tíma. Margar teg­undir af með­höndlun við geð­rænum kvillum hafa ekki verið að skila nógu góðum árangri, en ég bind vonir við að það gæti breyst mikið með til­komu hug­víkk­andi lyfja. Það var til að mynda gerð rann­sókn í Bristol sem sýndi að ef þú bætir við hefð­bundna þjón­ustu þrjár með­ferðir með hug­víkk­andi efnum undir hand­leiðslu sér­fræð­inga fór árangur með­ferð­ar­innar úr 5% upp í 75%. Núna eru margar stórar rann­sóknir í gangi sem benda til að þetta geti orðið tíma­mót í geð­lækn­ingum. Það stefnir í að bæði MDMA og psylociben verði lög­leitt í með­ferð­ar­skyni á ákveðnum stöðum á næstu árum. Það bendir margt til þess að þetta sé bara að ger­ast núna alveg á næst­unni,” segir Haraldur, sem segir sögu þess­arra efna áhuga­verða og í raun hafi orðið algjört stopp á rann­sóknum þegar Nixon var for­seti Banda­ríkj­anna:

„Sagan um hug­víkk­andi efni er mjög áhuga­verð. ,,War on Drugs“ sem varð til á Nixon tím­anum stöðv­aði alla fram­þróun í rann­sóknum á þessum efnum. Það er fyrst núna sem þessi ólög eru að byrja að falla úr gildi víða um heim. Í eit­ur­efna­fræðum er talað um LD50, sem er skammtur sem þarf að gefa rottum til þess að 50% af hópnum deyr. Hug­víkk­andi efni eru mjög neð­ar­lega á list­anum. Og þessi efni eru líka neð­ar­lega yfir fíkn og ávanda­bind­ingu. Þau eiga ekki heima í sama flokki og fíkni­efni. Þetta gæti hæg­lega orðið eitt stærsta skref geð­lækn­inga frá upp­hafi. En það þarf að sjálf­sögðu að fram­kvæma þetta í réttum aðstæðum með hand­leiðslu. Það hafa verið gerðar þús­undir rann­sókna á psilociben til dæmis, sem benda til þess að þessi teg­und með­ferðar virki vel á fíknir, áföll, kvíða og þung­lyndi. Það er ekki búið að gera nógu mikið af stórum rann­sóknum til að þetta sé orðið að lög­legum lyfjum, en það á eftir að ger­ast valda bylt­ingu. Það mun verða ummyndun á geð­lækn­is­fræð­inni sem fagi. Verkunin virð­ist vera það góð að lyfin sem eru nú í notkun kom­ast ekki nálægt því.“

Fjórða valdið dautt

Haraldur og Sölvi ræða í þætt­inum um áreitið í nútím­anum og hvernig það er orðið að einni stærstu ógn­inni við geð­heilsu:

„Við lifum flest þannig að það eru að dynja á okkur upp­lýs­ingar og áreiti allan dag­inn. Hvort sem það eru sam­fé­lags­miðlar, sjón­varp, útvarp eða annað. Skyn­færin og heilin eru stöðugt að taka við upp­lýs­ingum án þess að hafa næði til að vinna almenni­lega úr þeim. Staðan er orðin sú að það er í gangi flóð af upp­lýs­ingum og áreiti nán­ast allan sól­ar­hring­inn. Við þurfum öll að ná ró og að vera í stað og stund án þess að vera að mót­taka stöðugt áreiti á heil­ann. Svefninn er orð­inn helsta skjólið fyrir heil­ann til að ná ein­hvers konar úrvinnslu. En nú er staðan orðin þannig að margir ná ekki einu sinni almenni­legum svefni. Rann­sóknir sýna að ef fólk nær ekki alvöru draum­svefni og djúpsvefni, þá lærir það illa þær upp­lýs­ingar sem heil­inn hefur fengið inn.” 

Í þætt­inum ræða Sölvi og Haraldur líka um fjórða valdið, fjöl­miðlun og upp­lýs­inga­flæði. Haraldur sér þá hluti með aðeins öðrum augum en margir:

„Þessar fölsku fréttir sem við erum að fá mikið af eru svo­lítið skemmti­legar. Af því að þær gera kröfu til ein­stak­ling­ins að vera gagn­rýn­inn, sem er mjög mik­il­vægt. Sumir hafa auð­vitað gaman af því að ala á and­skot­anum og fita púk­ann sem situr á bit­anum eins og í íslenskum ævin­týrum. Þeir lifa á nei­kvæðni og erf­iðum til­finn­ingum. En á sama tíma gera þessar fals­fréttir kröfur til okkar að trúa ekki öllu eins og nýju neti, sem er mjög jákvætt. Það er eitt af okkar þroska­verk­efnum sem þjóð að læra að beita gagn­rýnni hugsun í hví­vetna. Covid-tíma­bilið til dæmis sýndi okkur fram á eitt af þessum þroska­verk­efnum sem við stöndum frammi fyrir sem þjóðir. Það var bara hylm­ing ofan á hylm­ingu og það mátti ekki segja fólki sann­leik­ann. Þetta ferli allt saman var ekki í lagi og því var stjórnað af Alþjóða-heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO). Svo kemur Trump bara svo­lítið eins og Loki inn í þetta og neitar að borga í þessa stofnun. Hann er algjör prakk­ari og gegnir sem slíkur ákveðnu hlut­verki í heild­ar­mynd­inni. En við munum fá annað sam­bæri­legt ferli eins og Covid tím­ann og þá verðum við að hafa lært eitt­hvað. Öll vís­indi ganga út á gagn­rýna umræðu, að velta hlutum upp, véfengja, en ekki að troða einni skoðun inn og úti­loka alla sem benda á aðra hluti. Fjórða valdið dó í raun og veru í Covid. Það er mjög hættu­legt og eitt­hvað sem við eigum ekki að sætta okkur við.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu