Sólveig Hulda Valgeirsdóttir er látin en greint er frá andláti hennar á Akureyri.net.
Hún fæddist á Akureyri 31. júlí 1975. Foreldrar Sólveigar eru Soffía Guðmundsdóttir og Valgeir Sigurðsson.
Sólveig lauk hjúkrunarfræðinámi frá Háskólanum á Akureyri árið 2001. Hún starfaði alla sína starfsævi á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri, þar sem hún gegndi starfi deildarstjóra síðasta árið. Þar á undan starfaði hún í um áratug sem aðstoðardeildarstjóri.
Auk starfs síns var Sólveig virk í ýmsum félagasamtökum og lagði einnig sitt af mörkum sem sjálfboðaliði fyrir Skautafélag Akureyrar.
Sólveig lætur eftir sig eiginmann og þrjú börn.





























Athugasemdir