Hollendingurinn Julian Daniel de Koning hefur verið ákærður fyrir brot á lögum um lax- og silungsveiði en hann er búsettur í Hollandi.
Hann á að hafa brotið lög með því að hafa þriðjudaginn 8. júlí 2025, verið á veiðum án leyfis i í Straumfjarðará við veiðistaðinn „Gamla brú“ í landi Hrísdals á Snæfellsnesi.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Vesturlands þann 14. apríl.































Athugasemdir