Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halldóra segir stríðið gegn fíkniefnum ýta undir ofbeldi og ójöfnuð

„Það væri gæfu­spor fyrir okkur Íslend­inga að læra af mis­tökum Svía“

Halldóra segir stríðið gegn fíkniefnum ýta undir ofbeldi og ójöfnuð
Halldóra Mogensen Halldóra vill að íslensk yfir­völd læri af mis­tökum Svía Mynd: Facebook

Halldóra Mogensen, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, segir að þróun í Svíþjóð sýni afleið­ingar strangrar refsi- og bann­stefnu í vímu­efna­málum. Þetta kemur fram í færslu sem hún birti á Facebook þar sem hún vísar til fréttar um 15 ára stúlku sem framdi morð fyrir Foxtrot-glæpa­gengið í Svíþjóð.

Í færsl­unni bendir Halldóra á að lönd með slíka stefnu glími við alvar­legri glæpa­vanda en þau sem beita skaða­minnk­andi nálgun. „Svíþjóð og önnur lönd með stranga refsi- og bann­stefnu í vímu­efna­málum eru að sjá meiri og verri glæpi en lönd sem taka upp skaða­minnk­andi nálgun. Svíþjóð, með eina ströng­ustu vímu­efna­stefnu í vestur Evrópu, hefur nú lang versta gengja­vand­ann á Norð­ur­lönd­unum.“

Hún segir rann­sóknir sýna að glæpa­gengi sæk­ist sér­stak­lega eftir við­kvæmum hópum. „Í sænskum rann­sóknum hafa sér­fræð­ingar í afbrota­fræði og félags­fræði bent á að glæpa­gengi sæki sér­stak­lega í ung­menni sem búa í van­ræktum hverfum í jað­ar­settum sam­fé­lögum sem treysta síður hinu opin­bera og stofn­unum þess. Glæpa­hópar nýta sér ein­stak­linga í félags­lega veikri stöðu.“

Að hennar mati er lyk­il­at­riði að bjóða ungu fólki raun­veru­lega val­kosti. „Ef við viljum koma í veg fyrir þessa þróun þurfum við að tryggja að ungt fólk eigi raun­veru­lega val­kosti. Við gerum þetta með því að byggja upp sam­fé­lag þar sem þau finna til öryggis, sam­fé­lag sem þau til­heyra og finna til­gang í að taka þátt í.“

Halldóra gagn­rýnir jafn­framt bann­stefnu í fíkni­efna­málum harð­lega og segir hana ýta undir skipu­lagða glæp­a­starf­semi. „Refsi- og bann­stefnan í fíkni­efna­málum eflir skipu­lagða glæp­a­starf­semi og stuðlar að gengja­myndun. Með því að setja vímu­efna­mark­að­inn algjör­lega utan lag­anna, gefur ríkið glæpa­gengjum ein­okun á þessum arð­bæra mark­aði.“

Hún bætir við að slík stefna hafi víð­tækar nei­kvæðar afleið­ingar. „Sala á vímu­efnum færir gríð­ar­legt fjár­magn í hendur hættu­legra glæpa­manna sem nota gróð­ann til að fjár­magna aðra glæpi. Stríðið gegn vímu­efnum ýtir bein­línis undir ofbeldi, ójöfnuð og fleiri sam­fé­lags­vanda­mál.“

Að lokum segir Halldóra að Ísland ætti að draga lær­dóm af stöð­unni í Svíþjóð. „Það væri gæfu­spor fyrir okkur Íslend­inga að læra af mis­tökum Svía og segja skilið við þessa skað­legu stefnu. Að heyja áfram þetta tap­aða stríð gegn vímu­efnum kostar okkur háar upp­hæðir sem hægt væri að beina frekar í að efla félags­lega stöðu og and­lega heilsu ungs fólks. Og leggja þannig grunn­inn að örugg­ara sam­fé­lagi til fram­tíðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum