Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp á einum sjúklingi

Fimm önnur mál voru látin niður falla

Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp á einum sjúklingi
Skúli Tómas Gunn­laugs­son Skúli Tómas við opn­un­ar­há­tíð Bryggju­húss­ins en þar á hann fjölda mál­verka Mynd: Víkingur

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur gefið út ákæru á hendur hjarta­lækn­inum Skúla Tómasi Gunn­laugs­syni vegna mann­dráps. Rannsókn máls­ins hefur staðið yfir um ára­bil og laut að sex til­vikum, en fimm þeirra hafa nú verið felld niður. Ákæra er hins vegar gefin út í einu máli. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Sjá einnig: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeð­höndl­aðar sýk­ingar kunni að hafa verið aðal dán­ar­or­sök“

Sjá einnig: Móðir Óla var sjúk­lingur Skúla: „Þú ert að fremja morð hérna beint fyrir framan okkur“

Sjá einnig: Beggi Dan: „Síðustu vik­urnar í lífi móður minnar voru henni hrein­asta kval­ræði“

Almar Möller, verj­andi Skúla Tómasar, stað­festir í sam­tali við frétta­stofu RÚV að gefin hafi verið út ákæra í einu máli.

Skúli Tómas hefur verið til rann­sóknar hjá lög­reglu og hér­aðs­sak­sókn­ara í um fimm ár, grun­aður um að hafa sett sjúk­linga sína á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja í lífsloka­með­ferðir án nægj­an­legs til­efnis. Hann var á tíma­bili sviptur lækna­leyfi en fékk það síðar aftur og hefur starfað á Land­spít­al­anum und­an­farin ár.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­al­anum var starfs­fram­lag hans hafnað um leið og ákæran lá fyrir.

Vonbrigði

Auk Skúla voru tveir aðrir heil­brigð­is­starfs­menn til rann­sóknar, læknir og hjúkr­un­ar­fræð­ingur, en mál þeirra voru felld niður.

Almar Möller segir í sam­tali við RÚV að ákvörðun hér­aðs­sak­sókn­ara sé von­brigði. Hann eigi erfitt með að skilja ákvörðun hér­aðs­sak­sókn­ara um að ákæra Skúla Tómas en trúi því að máls­með­ferð fyrir dómi sýni fram á að ekk­ert refsi­vert hafi átt sér stað.

Skúli Tómas er ákærður fyrir mann­dráp og brot á lögum um heil­brigð­is­starfs­menn. Til vara er hann ákærður fyrir mann­dráp af gáleysi og brot á sömu lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina