Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vill vísa syni Netanyahu úr Bandaríkjunum og senda hann í stríð

„Hendið honum út á morgun“

Vill vísa syni Netanyahu úr Bandaríkjunum og senda hann í stríð
Steve Bannon Bannon er ólík­inda­tól Mynd: OLIVIER TOURON / AFP

Steve Bannon, fyrr­ver­andi ráð­gjafi Donald Trump Banda­ríkja­for­seta, hefur kallað eftir því að Yair Net­anyahu, sonur for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, Benjamin Net­anyahu, verði vísað frá Banda­ríkj­unum og sendur á víg­lín­una á meðan sam­eig­in­legar árásir Banda­ríkj­anna og Ísraels á Íran halda áfram, að því er erlendir fjöl­miðlar greina frá.

Í við­tali á hægri­s­inn­aða streym­isveit­unni „Real America’s Voice“ velti Bannon því upp hvers vegna Yair væri í fríi í Miami á meðan árás­irnar stæðu yfir.

„Sonur Net­anyahu er þarna í Miami, hendið honum út á morgun,“ sagði hann og hvatti banda­ríska heima­varn­ar­ráðu­neytið (DHS) til að grípa til aðgerða.

„Hvar er DHS þegar maður þarf á því að halda? Sendið hann til baka. Látið hann fara í bún­ing. Setjum hann í fyrstu bylgj­una,“ bætti Bannon við.

Bannon beindi gagn­rýni sinni einnig að prinsum frá arab­ískum Persaflóa­ríkjum sem eru banda­menn Banda­ríkj­anna og sagði að þeir ættu sömu­leiðis að vera reknir úr borgum á borð við Lundúnir og sendir til að berj­ast á svæð­inu, í ljósi þess að Banda­ríkin hafa gefið til kynna að þau gætu hafið land­hernað.

Hvorki Yair né bróðir hans Avner hafa lokið skyldu­her­þjón­ustu í Ísrael, þrátt fyrir að vera báðir á þeim aldri.

Bannon starf­aði sem hátt­settur ráð­gjafi á fyrsta kjör­tíma­bili Trumps og er enn áber­andi rödd innan MAGA hreyf­ing­ar­innar.

Banda­ríkin og Ísrael hafa fram­kvæmt loft­árásir á Íran frá 28. febr­úar og hafa þær kostað yfir 1.340 manns lífið, þar á meðal æðsta leið­toga lands­ins á þeim tíma, Ali Khamenei.

Íran hefur svarað með dróna- og eld­flauga­árásum á Ísrael, Jórdaníu, Írak og Persaflóa­ríki þar sem banda­rískar her­stöðvar eru stað­settar. Árás­irnar hafa valdið mann­falli og skemmdum á innviðum, auk þess að trufla alþjóð­lega mark­aði og flug­sam­göngur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife