Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Lét talsmann Ísraelshers fá það óþvegið í beinni útsendingu

„Hvernig sef­urðu á nótt­unni?“

Lét talsmann Ísraelshers fá það óþvegið í beinni útsendingu
Doron Spielman Spielman átti fá svör við orða­hríð Hasans Mynd: Skjáskot

Breski blaða-og fjöl­miðla­mað­ur­inn Medhi Hasan lét majór í Ísra­els­hers og tals­mann hers­ins, Doron Spielman, heyra það í við­tali í þætti Piers Morgan, Piers Morgan: Uncencored í gær en mynd­skeið úr þætt­inum hefur farið á dreif­ingu á sam­fé­lags­miðl­unum.

Í klipp­unni segir Medhi, sem er harður and­stæð­ingur rík­is­stjórnar Benja­mins Net­anyahu, við Piers að Íran sé ekki aðal „skúrk­a­ríki“ Mið­aust­ur­landa, heldur Ísrael.

„Ég heyri hann [Spielman] tala um skrímsli sem stjórni rík­is­stjórn, and­lit ótt­ans, kjarn­orku­vopn. Hvaða þjóð erum við að tala um hér? Íran eða Ísrael? Því mig langar að spyrja áhorf­endur nokk­urra spurn­inga sem þeir geta hugsað um á meðan þeir hlusta á Donan hér. Hvaða land í Mið­aust­ur­löndum er með kjarn­orku­vopn? Það er ekki Íran, það er Ísrael. Hvaða land hefur ekki skrifað undir samn­ing­inn um bann við dreif­ingu kjarna­vopna? Það er ekki Íran, það er Ísrael. Hvaða land hefur hunsað ályktur Örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna sem kveður á um að landið opni kjarn­orku­að­stöðu fyrir rann­sak­endum Alþjóða­kjarn­orku­mála­stofn­un­ar­innar? Það er ekki Íran, það er Ísrael. Hvaða land réð­ist á sex lönd í Mið­aust­ur­löndum á síð­asta ári? Sex. Það var ekki Íran, það var Ísrael. Þannig að þrátt fyrir margar syndir Írans og glæpi, er Íran ekki skúrk­a­ríkið með kjarn­orku­sprengj­urnar í Mið­aust­ur­löndum núna, það land er Ísrael.“

Medhi heldur áfram og bendir á fyrri orð Piers Morgan í þætt­inum þar sem hann sagði flesta telja Ísrael vera ógn við frið í Mið­aust­ur­löndum og heim­inum öllum. Hann bendir einnig á að Piers hafi sagt að Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­hera Ísraels, hafi dregið banda­ríska for­seta úr Repúp­likana­flokknum inn í stríð og nefnir Íraks­stríðið og nú Írans­stríðið.

Í öðru mynd­skeiði úr þætt­inum, sem sjá má hér að neðan spyr Medhi Spielman hvernig hann sofi á nótt­unni.

„Doron, her­inn þinn var að drepa 300 manns á aðeins 10 mín­útum í síð­ustu viku. Þið sprengduð upp börn í barna­vögnum. Þið drápuð árs­gam­alt barn í jarð­ar­för. Þið drápuð 300 manns á einum degi í Líbanon í síð­ustu viku. Þið fylltuð sjúkra­húsin. Þið sprengduð hjálp­ar­mið­stöðvar.“

Spielman reynir að malda í móinn spyr Medhi hver hafi skapað þann víg­völl en Medhi svarar að bragði:

„Þið gerður það. Þið rifuð vopna­hléið við Hezbolla 15.000 sinnum. Þið rifuð vopna­hléið 15.000 sinnum sam­kvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum.“

Þegar Spielman seg­ist ekki hafa heyrt þessar tölur segir Medhi: „Doron, ég veit að þú ert ekki mikið fyrir stað­reyndir, er það nokkuð? En þú hefur ekki komið með eina ein­ustu stað­reynd í þessu sam­tali. 15.000 vopna­hlés­brot. Af hverju rifuð þið vopna­hléið við Hezbollah?“

Spielman heldur því þá fram að her­inn hafi varað fólk við árásum, svo hægt væri að drepa Hezbollah-liða en því mót­mælir Medhi.

„Nei. Af hverju drápuð þið þá 300 manns á 10 mín­útum? Af hverju frömduð þið 7. októ­ber Líbanons í síð­ustu viku? Af hverju drápuð þið 300 manns? Doran, skammastu þín ekk­ert fyrir það að her­inn þinn slátr­aði 300 manns á 10 mín­útum? Hvernig sef­urðu á nótt­unni, styðj­andi her sem slátrar 300 manns á 10 mín­útum?“

Hið magn­þrungna rifr­ildi hélt áfram en hægt er að horfa á allt mynd­bandið hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Deilan hófst eftir að Heimir Már Pétursson hvatti til að hermenn yrðu sendir til Úkraínu og kjarnorkuvopn undirbúin.
Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Heimur

Flug­velli í Póllandi lokað eftir sprengju­hótun

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Heimur

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

„Þetta er það ótrúlegasta sem ég hef séð!“
Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús