Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vala opnar sig um líknardauða móður sinnar og handtöku í kjölfarið

„Ég mun alltaf standa með því en ég mun lík­lega líka alltaf lifa með því.“

Vala opnar sig um líknardauða móður sinnar og handtöku í kjölfarið
Vala Hösk­ulds­dóttir Vala opnar sig í nýju við­tali Sam­stöðv­ar­innar Mynd: YouTube-skjáskot

Vala Hösk­ulds­dóttir lista­kona opn­aði sig upp á gátt í við­tali Ásdísar Olsen á Sam­stöð­inni í gær. Þar ræddi hún meðal ann­ars um örmögnun sem hún upp­lifði í kjöl­far líkn­ar­dauða móður hennar sem leiddi til hand­töku.

Móðir Völu glímdi við langvar­andi veik­indi frá því að Vala var 16 ára gömul.

„Það eru alltaf að koma upp ný og ný æxli, ný og ný alls­konar, sem endar á því að hún er orðin það verkjuð að allar pillur eru hættar að verka á þetta og lækn­arnir eru hættir að geta gert neitt. Og hún var í raun­inni að bíða eftir að frum­varpið um dán­ar­að­stoð færi í gegn á þingi. En svo leið og beið með það og það er ekki ennþá komið í gegn. Og þetta er flókin og stór umræða. Þannig að hún tekur þetta í sínar hendur og tekið líf sitt.“

Vala segir að móðir hennar hafi verið „villi­kerl­ing“ og „svo­lít­ill indíáni“ og hafi vitað hvaðan hún kom og átti þá við fyrri líf.

„Hún bæði mundi alls­konar fyrri líf og til­finn­ing­una um stað­inn handan mann­legrar til­veru,“ segir Vala og segir móður sína hafa sagt henni að vera ekki dramat­ísk þó hún væri að fara að deyja: „Hún sagði bara „æ Vala, ekki vera að dramat­ísera það þegar ég er farin, ég er bara að far a heim“.“

Segir Vala að þessi orð hafi að ein­hverju leyti hjálpað henni að kveðja hana. Hún segir að hlut­irnir hafi þó flækst tals­vert en að móðir hennar hafi ætlað að enda líf sitt á snyrti­legan hátt en svo hafi málið tor­veld­ast tölu­vert.

„Hún tók bara pillur og ætl­aði að leggj­ast til svefns og ekki vakna aftur dag­inn eftir. En það fór ekki eins og það átti að fara. Þetta tók allt miklu lengri tíma en það átti að gera og á end­anum voru þetta ein­hverjir 40, 50 klukku­tímar þar sem við sátum yfir henni í dauða­stríð­inu. Og svo hringjum við í lög­regl­una þegar þetta er afstaðið og þegar þau mæta á svæðið þá er okkur til­kynnt að hér sé aug­ljóst að mann­eskja hafi látið lífið og henni ekki komið til bjargar, þannig að við erum send í fang­elsi.“

Auk Völu var faðir hennar við hlið móður hennar er hún lést en móðir hennar hafði beðið Völu að hjálpa föður hennar á meðan á þessu stæði.

„Og þarna tekst á, eins og ég skrifa í ljóða­bók­inni, þetta er bæði hámark með­virkn­innar að taka þátt í svona og hámark sam­kennd­ar­innar.“

Þegar Ásdís biður Völu að lýsa upp­lifun hennar á meðan á dauða­stríði móð­ur­innar var í gangi segir Vala:

„Þegar þetta var að ger­ast og þegar mamma hringir og segir „Vala, ég vil að þú hættir við pönnu­köku­boðið og komir og passir pabba þinn á meðan ég dey“, þá fannst mér það sjálf­sagt. Og ég mundi ekki breyta neinu. Og það er líka þetta, við eigum okkar líf sjálf og þegar þú ert komin á stað þar sem þú getur ekki verið til, þá þú veist, við tölum um þetta í bríaríi, ég er með svona samn­ing við bræður mína ef ég fæ Alzheimer eða eitt­hvað, þá segir maður svona „æ viltu ekki bara hjálpa mér?“ en þegar kemur að þessu þá er þetta flókn­ara. Þannig að já, mér fannst þetta sjálf­sagt og ég mun alltaf standa með því en ég mun lík­lega líka alltaf lifa með því.“

Hér fyrir neðan má sjá við­talið í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu