Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Ég hef misst aflið á bak við röddina“

Gunnar Smári Egilsson opnar sig um áhrif veik­ind­anna á and­legu hlið­ina.

„Ég hef misst aflið á bak við röddina“
Gunnar Smári Egilsson Gunnar Smári er bjart­sýnn þrátt fyrir allt Mynd: Facebook

Gunnar Smári Egilsson, rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar, opnar sig um erf­iða heilsu og bata­ferli í nýrri Facebook-færslu þar sem hann lýsir líðan sinni eftir inn­lagnir á hjarta­deild.

„Ég sagði ykkur frá því um dag­inn þegar ég lagð­ist inn á hjarta­deild tví­vegis og fólk spyr mig því oft hvernig ég hafi það, sum um leið og þau ósk­uðu mér góðs sum­ars í gær. Skítt og lagó, svara ég, en ég verð góður í sumar. Þetta lýsir hug­ar­á­standi, ég hvorki veit né skil hvernig mér líður í dag en ég hef trú á að ég verði jafn góður aftur, ekki seinna en í sumar.“

Lýsir líkamlegri og andlegri vanlíðan

Gunnar Smári segir að veik­indi hafi tekið mik­inn toll, bæði lík­am­lega og and­lega. Hann lýsir því hvernig orkan hafi horfið og lík­ams­starf­semi breyst:

„Minn vandi er að ég kann ekki á mig lengur. Það hellist yfir mig mæði og þreyta án þess að ég sjái neitt sam­hengi. Ég sofna fimm sinnum yfir dag­inn, sitj­andi í stól eða liggj­andi í sófa.“

Hann segir jafn­framt að hann hafi upp­lifað veru­lega skerð­ingu á orku:

„Ég er á 17% orku svar­aði ég hjúkr­un­ar­fræð­ingi um dag­inn. Ég held ég sé kom­inn upp í 23%, svar­aði ég dag­inn eftir.“

Flensa setti bataferli úr skorðum

Í færsl­unni kemur fram að flensa hafi gert ástandið verra og hrundið honum aftur í veik­indi:

„Ég var kannski óhepp­inn, fékk flensu og þá gekk til baka sá árang­ur­inn sem með­ferðin hafði fært mér. Ég hrökk aftur úr takti og varð veik­ari en ég hef verið síðan ég fékk misl­ing­ana tólf ára.“

Hann lýsir einnig alvar­legum and­legum ein­kennum á meðan veik­indin stóðu sem hæst:

„Í flens­unni var ég með eins og vak­andi óráð, fylgd­ist með hug­anum spinna upp ein­hverja þrá­hyggju um skað­legt blóð og hvernig ég yrði að svara því, án þess að trúa þessu.“

Gunnar Smári segir að hann hafi misst styrk í rödd og til­finn­ingatján­ingu:

„Ég hef misst aflið á bak við rödd­ina. Hún er ekki bara veik heldur get ég ekki talað með eðli­legum áherslum. Ég á nóg með orðin, næ ekki að setja til­finn­ingu á bak við þau.“

Hann lýsir einnig ákveð­inni firr­ingu gagn­vart eigin lík­ama:

„Húðin glansar stundum, ég horfi á hend­urnar og þekki þær ekki, ekki frekar en lafði Macbeth.“

Í færsl­unni ræðir hann einnig um skort á skiln­ingi á því hvernig lík­am­legir sjúk­dómar hafi áhrif á and­legt ástand:

„Ég hef ekk­ert sjúk­dómsinn­sæi, veit ekk­ert hvaða áhrif hjarta­bilun hefur á per­sónu­leika fólks.“

Þrátt fyrir erf­ið­leik­ana seg­ist hann bjart­sýnn á bata:

„Ég skrifa þetta til að vita hvort andi minn sé með mér. Ég sakna hans og hlakka til að fá að lifa aftur fullu lífi. Það verður í sumar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ