Fjórum einstaklingum var bjargað úr Signuánni nærri París á fimmtudag eftir að rúta, sem ekið var af ökunema undir leiðsögn kennara, hafnaði í ánni eftir árekstur við kyrrstæða bifreið. Þetta kemur fram í upplýsingum frá frönskum yfirvöldum.
Atvikið átti sér stað í bænum Juvisy-sur-Orge, suðaustur af París. Samkvæmt saksóknurum fór rútan út af veginum og hafnaði í ánni við enn óljósar aðstæður.
„Ökumaðurinn og þrír aðrir einstaklingar voru um borð í rútunni. Öllum hefur verið bjargað,“ sagði í yfirlýsingu frá saksóknaraembættinu. Lögregla hefur hafið rannsókn á málinu.
Ekki hafa verið veittar upplýsingar um ástand þeirra sem bjargað var.
Fréttamaður AFP á vettvangi greindi frá því að rútan hefði sokkið að fullu í ána nærri brú á svæðinu. Kyrrstæða bifreiðin sem rútan rakst á endaði einnig í ánni.
Mikill viðbúnaður var á vettvangi og komu meðal annars að björgunaraðgerðum björgunarbátar, dróni og þyrlur.
Í tilkynningu frá héraðsyfirvöldum sagði að enn væri unnið að því að staðfesta umfang slyssins.
Þingkonan Claire Lejeune staðfesti að ökunemi hefði verið við stýrið þegar slysið varð.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir