Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dóra Björt húðskammar RÚV vegna fréttar

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur alla tíð verið dug­legur við að moka drullu inn í loka­sprett kosn­inga­bar­áttu.“

Dóra Björt húðskammar RÚV vegna fréttar
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir Dóra Björt er fok­ill út í RÚV

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir RÚV harð­lega í nýrri Facebook-færslu og veltir þar upp hvort rík­is­fjöl­mið­ill­inn sé í raun kom­inn í kosn­inga­bar­áttu fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

Tilefnið er umfjöllun RÚV um svo­kallað bens­ín­stöðva­málið aðeins sex dögum fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

„Það var eig­in­lega með ólík­indum að horfa á kvöld­fréttir RÚV í fyrra­kvöld. Sex dögum fyrir kosn­ingar er bens­ín­stöðva­málið blásið upp á ný, án þess að nokkuð nýtt hafi komið fram. Engin ný gögn. Engar nýjar ákvarð­anir,“ skrifar Dóra Björt.

Hún segir ekk­ert rétt­læta tíma­setn­ingu frétt­ar­innar og heldur því fram að málið hafi verið „end­ur­hitað“ á nákvæm­lega réttum tíma í póli­tískum til­gangi.

„Nánast eins og fréttin hafi legið til­búin í skúffu mán­uðum saman og ein­fald­lega verið dregin fram á nákvæm­lega ,,rétta“ augna­blik­inu,“ skrifar hún.

Dóra Björt bendir á að fram­kvæmdir við lóð við Egils­götu hafi staðið yfir í marga mán­uði og skipu­lagið verið afgreitt löngu áður en skýrsla um bens­ín­stöðvar leit dags­ins ljós.

„Hver er þá fréttin nákvæm­lega? Tíma­setn­ingin er fréttin,“ segir hún.

Í færsl­unni sakar hún jafn­framt Sjálf­stæð­is­flokk­inn um að hafa lengi beitt nei­kvæðri kosn­inga­bar­áttu rétt fyrir kosn­ingar og segir það sem veki sér­staka athygli nú sé að rík­is­fjöl­mið­ill­inn virð­ist taka þátt í henni.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur alla tíð verið dug­legur við að moka drullu inn í loka­sprett kosn­inga­bar­áttu. Það sem stingur núna er að rík­is­fjöl­mið­ill­inn virð­ist ekki aðeins hlaupa með þá bolta heldur jafn­vel sparka þeim af stað sjálfur,“ skrifar hún.

Hún nefnir einnig að frétta­mað­ur­inn sem hafi leitt umfjöll­un­ina hafi „aug­ljós tengsl inn í Sjálf­stæð­is­flokk­inn og fjöl­skyldu­teng­ingar við harða gagn­rýnendur meiri­hlut­ans“, þó hún taki fram að það þurfi ekki eitt og sér að þýða neitt.

Að hennar mati vakna engu að síður spurn­ingar um for­gangs­röðun og hlut­leysi hjá RÚV.

„Þegar RÚV ákveður að end­ur­hita gam­alt mál korteri fyrir kosn­ingar án nýrra upp­lýs­inga eða nýlegra atburða sem skýra tíma­setn­ing­una, þá er eðli­legt að fólk spyrji sig: Er verið að upp­lýsa almenn­ing, eða hafa áhrif á kosn­ingar?“ skrifar Dóra Björt.

María Sigrún hafnar ásökununum

María Sigrún Hilm­ars­dóttir, frétta­maður hjá RÚV, hafnar því að umfjöllun hennar um svo­kall­aðar bens­ín­stöðva­lóðir hafi verið póli­tískur áróður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, líkt og Dóra Björt heldur fram í færslu sinni.

Í svari við fyr­ir­spurn Sam­stöðv­ar­innar segir María Sigrún að fréttin hafi fyrst og fremst fjallað um mikla verð­hækkun á einni lóð.

„Það hefur hvergi komið fram áður og skrýtið að það telj­ist ekki frétt­næmt. Í frétt­inni er verið að varpa upp mynd af því hvað hefur gerst síðan borgin afhenti olíu­fé­lög­unum þær með bygg­ing­ar­rétti,“ segir hún.

Samkvæmt frétt­inni hafi ein bens­ín­stöðva­lóð hækkað um 518 millj­ónir króna á 20 mán­uðum án þess að fram­kvæmdir hæfust á svæð­inu.

Hvað varðar fjöl­skyldu­tengslin sem Dóra Björt minnt­ist á seg­ist María Sigrún ekki átta sig á hvaða tengsl það eigi að vera.

„Ég veit ekki um hvaða fjöl­skyldu­tengsl er um að ræða en þetta eru 12 lóðir í Reykja­vík. Við þekkjum öll ein­hverja sem eiga heima nálægt þessum lóðum svo ég skil ekki alveg,“ segir hún.

Hún segir jafn­framt að umfjöll­unin hafi fyrst og fremst snú­ist um verð­mæti og fast­eigna­við­skipti.

„Fréttin snýst um gríð­ar­leg verð­mæti sem ganga kaupum og sölum,“ bætir hún við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum