Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Maður sér sama fólkið koma inn aftur og aftur jafnvel þangað til það deyr“

Oddviti Flokks fólks­ins opnar sig í nýju við­tali

„Maður sér sama fólkið koma inn aftur og aftur jafnvel þangað til það deyr“
Guð­mundur Ingi Þór­odds­son Er odd­viti í Reykja­vík Mynd: Golli

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, félags fanga, leiðir lista Flokks fólks­ins í Reykja­vík. Í Mann­lífs­við­tal­inu fer hann yfir helstu áherslu­mál sín og flokks­ins, meðal ann­ars í hús­næð­is­málum, mál­efnum eldri borg­ara og stöðu þeirra sem standa höllum fæti í sam­fé­lag­inu, þar á meðal ein­stak­linga sem hafa lokið afplánun. Þá telur hann mik­il­vægt að end­ur­meta áherslur Borg­ar­lín­unnar innan sam­göngusátt­mála ríkis og sveit­ar­fé­laga.

Í við­tal­inu ræðir Guð­mundur Ingi einnig opin­skátt um eigin for­tíð og reynslu af fang­els­is­vist. Hann segir þá reynslu hafa mótað sig og orðið hluta af þeim styrk sem hann býr yfir í dag. Markmið sitt sé að styðja aðra og leggja sitt af mörkum til að bæta fyrir mis­tök for­tíð­ar­innar.

Guð­mundur Ingi segir í við­tal­inu frá því að hann hafi verið í neyslu þegar hann fór inn á Litla-Hraun í fyrra skiptið, en hann hefur tvisvar setið þar inni.

„Fangelsi eru vett­vangur allra vímu­efna, nýrra efna og þró­unar á vímu­efnum. Það er vegna þess að fólk hefur ekk­ert að gera. Fólk er að reyna að breyta hug­ar­á­standi sínu og líðan til að þurfa ekki að hugsa um áföllin,“ segir hann.

Þegar ekk­ert upp­byggi­legt sé í gangi og dóm­arnir, eða fang­els­is­vistin, hafi ekki til­gang sé fólk að reyna að deyfa sig. Þess vegna snú­ist lífið í fang­elsi oft um vímu­efni.

„Þar eru mynduð sam­bönd við aðra á svip­uðu róli. Fólk veit ekki hvað bíður þess þegar það kemur út og það vill halda öllum mögu­leikum opnum. Þetta er svo­lítið þannig.“

Hvernig er þessi heimur innan fang­els­is­ins? Að vera í stein­inum. Grjótinu.

„Ég held að ég geti sagt að þetta sé erf­iður staður að vera á. Mórall­inn og menn­ingin er svört. Það er ekk­ert sem dregur mann áfram, hjálpar manni, styður mann eða er að vinna í málum manns. Þetta er ein­hvers konar veru­leiki þar sem allir dagar eru eins,“ segir hann.

Maður eign­ist ekki mikið af vinum á þessum stöðum.

„Þetta er fyrst og fremst mjög sorg­legt. Maður sér sama fólkið koma inn aftur og aftur jafn­vel þangað til það deyr. Menn eru ekki mikið að þroskast þarna inni til dæmis. Þessu þarf að breyta,“ segir Guð­mundur Ingi.

Þess vegna séu þau svo fók­useruð á að breyta refsi­menn­ing­unni.

„Menn reyna að stytta sér stundir með póker, fara út að æfa eða út að labba, elda saman eða horfa á sjón­varpið. Þannig að það er eitt­hvað reynt. En þetta getur verið mjög erf­iður staður,“ segir hann.

Þarna sé blanda af alls konar fólki. Þar geti verið mjög and­lega veikt fólk og fólk með alls konar rask­anir, og svo komi neyslan inn í það. Þetta geti verið mjög flókið.

„Ég get alla­vega sagt eitt. Þegar maður er búinn að vera þarna í svo­lít­inn tíma getur maður í raun og veru unnið með hvaða stjórn­mála­manni og stjórn­mála­flokki sem er,“ segir Guð­mundur Ingi og hlær.

Maður læri að bera virð­ingu fyrir öllum og skoð­unum allra, láta ekk­ert fara í taug­arnar á sér og hlusta á sjón­ar­mið ann­arra. Það sé góður eig­in­leiki, að hans mati.

„Ég sagði nýlega við ein­hvern að hann hefði gott af því að vera á Litla-Hrauni í tvo, þrjá mán­uði til að læra að umgang­ast annað fólk, bera virð­ingu fyrir skoð­unum ann­arra og láta ekki æsa sig yfir smá­vægi­legum hlutum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu