Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Rauði krossinn lokar neyðarskýli fyrir flóttafólk

„Fólk á flótta skal hverfa úr aug­sýn almenn­ings og verða að and­lits­lausum tölum sem hurfu“

Rauði krossinn lokar neyðarskýli fyrir flóttafólk
Neyð­ar­skýli Rauða kross­ins Neyð­ar­skýl­unum verður lokað í dag Mynd: Aðsend

Rauði kross­inn á Íslandi mun klukkan 10:00 í dag loka neyð­ar­skýli fyrir flótta­fólk sem starf­rækt hefur verið frá sept­em­ber 2023. Fólkið verður flutt í bæj­ar­hraun 16 í Hafn­ar­firði, í hús­næði á vegum stoð­deildar
rík­is­lög­reglu­stjóra. Þetta kemur fram í harð­orðri yfir­lýs­ingu frá vinum og stuðn­ings­fólki íbúa skýl­is­ins.

Samkvæmt yfir­lýs­ing­unni hefur skýlið hýst fólk sem hafi verið „svipt grund­vall­ar­rétt­indum sínum og mann­legri reisn“ eftir að umsóknum þeirra um alþjóð­lega vernd hafi verið hafnað, þrátt fyrir að ekki hafi reynst mögu­legt að flytja það úr landi.

„Þetta er því ekki hópur sem „neitar bara að fara“. Þetta er fólk sem ríkið hefur reynt að losa sig við, án árang­urs, en neitar samt að veita því húsa­skjól eða lág­marks­ör­yggi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þar kemur einnig fram að íbúar skýl­is­ins hafi flúið meðal ann­ars póli­tískar ofsóknir, stríð, þræla­hald og aðrar lífs­hættu­legar aðstæður.

Stuðn­ings­fólkið segir lok­un­ina vera beina afleið­ingu ákvörð­unar dóms­mála­ráð­herra Íslands og félags­mála­ráð­herra Íslands um að end­ur­nýja ekki samn­ing við Rauða kross­inn um rekstur úrræð­is­ins.

Með lok­un­inni hætti Rauði kross­inn allri hús­næð­is­þjón­ustu fyrir flótta­fólk hér á landi.

Í yfir­lýs­ing­unni er einnig gagn­rýnt það sem kallað er „ein­angr­un­ar­búðir“ rík­is­stjórnar Kristrún Frosta­dóttir, svo­kall­aða brott­far­ar­stöð fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd.

„Klukkan 10 á morgun (í dag) munu stjórn­völd ekki leita neinna lausna á stöðu fólks­ins. Það verður ein­fald­lega fært til í kerfi sem firrar sig allri ábyrgð. Fólk á flótta skal hverfa úr aug­sýn almenn­ings og verða að and­lits­lausum tölum sem hurfu,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni.

Þá er varað við því að vistun fólks í slíkum búðum geti dregið úr líkum á að meint brot í máls­með­ferð komi fram opin­ber­lega.

„Með þessu gull­tryggja stjórn­völd mögu­leik­ann á frek­ari brotum gegn grund­vall­ar­reglu þjóða­réttar um bann við því að vísa fólki brott eða end­ur­senda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Að lokum kemur fram að vinir og stuðn­ings­fólk íbúa skýl­is­ins hygg­ist vera við­stödd þegar fólk­inu verður vísað út úr úrræð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ