Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Dagur B. og Stefán E. deila um stórútgerðirnar

„Jæja kerl­ingin mín.“

Dagur B. og Stefán E. deila um stórútgerðirnar
Dagur B. Egg­erts­son Stefán bað um gögn og fékk þau Mynd: Víkingur

Dagur B. Egg­erts­son, þing­maður Sam­fylk­ingin og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, segir nýja skýrslu frá Hag­fræði­stofnun Háskóli Íslands sýna að 20 stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins hafi átt yfir 400 millj­arða króna í öðrum félögum í árs­lok 2024.

Í Facebook-færslu vísar Dagur til orða­skipta sem hann hefur átt í við Stefán Einar Stef­áns­son, sið­fræð­ing og þátta­stjórn­anda hjá Morg­un­blað­inu, um áhrif og umfang stór­út­gerð­ar­innar í íslensku atvinnu­lífi. Stefán Einar skrif­aði athuga­semd við aðra færslu Dags þar sem hann krafð­ist gagna um stað­hæf­ingar þing­manns­ins sem hann setti fram í pistli í Morg­un­blað­inu. Í pistl­inum spyr hann hvort stór­út­gerðin sé að eign­ast Ísland.

Dagur birtir skjá­skot af athuga­semd Stefáns Einars þar sem sið­fræð­ing­ur­inn krefur hann um gögn, máli sínu til stuðn­ings.

Stefán skrif­aði: „Hvað á "stór­út­gerðin" stóran hluta af íslensku atvinnu­lífi?

Það er mik­il­vægt að þú getir svarað því með vísan í ein­hver hald­bær gögn. Eða skipta stað­reyndir engu máli?“

Dagur segir í nýju færsl­unni, skýrsl­una sem hann bendir Stefáni á hafa verið unna að hans beiðni og birt á vef Alþingis síð­degis.

„Það sem blasir við er að fyr­ir­tækin áttu yfir 400 millj­arða í öðrum félögum. Það er greini­lega var­lega áætlað og ekki allt talið,“ skrifar hann.

Þing­mað­ur­inn seg­ist lengi hafa haft áhyggjur af auknum umsvifum stór­út­gerð­ar­innar og telur þró­un­ina geta haft víð­tæk áhrif á íslenskt sam­fé­lag.

„Ég hef lýst þeim áhyggjum að stór­út­gerðin sé að eign­ast Ísland ef svona heldur áfram, vegna ofur­hagn­aðar af sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar, án þess að borga eðli­leg veiði­gjöld og aðgangi að hag­stæðum lánum í evrum,“ skrifar Dagur í nýju færsl­unni.

Í færsl­unni segir hann jafn­framt að hann hafi verið kraf­inn um gögn og rök fyrir full­yrð­ingum sínum og birtir nú skýrsl­una sem svar við þeirri gagn­rýni.

„Ég hef verið krafin svara - og beðin um rök og gögn. Þau eru komin. Gjörðið svo vel!“ skrifar hann.

Við fyrri færsl­una hafði Dagur svarað sið­fræð­ingnum á eft­ir­far­andi máta:

„Stefán Einar Stef­áns­son gjörðu svo vel karl­inn minn. https://www.althingi.is/.../157/fylgiskjol/s1225-f_IV.pdf“

Sið­fræð­ing­ur­inn svarar Degi og sakar hann um lygar.

„Jæja kerl­ingin mín. Þetta skjal er til lít­ils gagns enda stað­festir það að þú hefur haldið fram ósann­indum.

Þar segir meðal ann­ars: Samtals áttu félög tengd 20 stærstu kvóta­höfum útgerðir með kvóta að verð­mæti 59 millj­arðar króna í lok árs 2024, eins og sjá má í neðstu línu töfl­unnar hér á eftir. Þar af námu fjár­fest­ingar síð­ustu tíu ára 15 millj­örðum. Eignir í öðrum íslenskum fyr­ir­tækjum námu 73 millj­örðum, en hreinar fjár­fest­ingar tengdra félaga í þeim und­an­farin tíu ár voru 46 millj­arðar. Erlendar eignir tengdra félaga voru litlar.

Þetta stað­festir að fjár­fest­ingar í ótengdum greinum eru ekki miklar. Það er eig­in­lega rann­sókn­ar­efni að þær skuli ekki vera meiri.

Viss um að útgerð­ar­fé­lögin hefðu viljað fá ókeypis lóðir frá þér. Það telst reyndar ekki til fjár­fest­inga heldur gjafagjörn­inga. Ömur­legra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum