Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Höttur dregur sig úr Gatorade-bikarnum vegna ferðakostnaðar

„Þetta er veru­leiki sem félög á lands­byggð­inni þurfa reglu­lega að glíma við“

Höttur dregur sig úr Gatorade-bikarnum vegna ferðakostnaðar
Vil­hjálms­völlur Annar tveggja knatt­spyrna­valla sem Höttur not­ast við Mynd: Múlaþing

Höttur hefur ákveðið að draga lið sitt úr Gatorade bik­arnum vegna ágrein­ings um skipt­ingu ferða­kostn­aðar og segir stjórn Rekstr­ar­fé­lags Hattar núver­andi reglu­verk ósann­gjarnt gagn­vart lands­byggð­ar­fé­lögum.

Í til­kynn­ingu frá stjórn Rekstr­ar­fé­lags­ins segir að ákvörð­unin hafi verið tekin eftir „mikla umhugsun“ og megi rekja til bik­ar­leiks síð­asta sum­ars þar sem ferða­kostn­aður félags­ins vegna flugs og bíla­leigu­bíla hafi numið rúm­lega einni milljón króna.

Þá þurftu leik­menn og þjálf­arar að gista eftir leik­inn þar sem um kvöld­leik var að ræða, en sá kostn­aður féll ekki undir reglur um ferða­kostnað.

Stjórn félags­ins segir að einnig hafi verið aflað til­boðs í rútu­ferð milli Egils­staðir og Reykja­vík sem hafi hljóðað upp á eina milljón króna. Slík ferð hefði þó þýtt að leik­menn þyrftu bæði að leika sama dag og þeir sætu í um átta klukku­stunda rútu­ferð, auk þess að missa tvo daga úr vinnu.

„Þetta er veru­leiki sem félög á lands­byggð­inni þurfa reglu­lega að glíma við,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Fengu aðeins 250 þúsund krónur greiddar

Samkvæmt stjórn Hattar feng­ust aðeins 250 þús­und krónur greiddar eftir nær árs langan ágrein­ing milli félag­anna vegna ferða­kostn­aðar síð­asta sum­ars.

Vísað er til reglu­gerðar Knatt­spyrnu­sam­band Íslands þar sem segir að ferða­kostn­aði skuli skipt jafnt milli liða, en að aðkomulið skuli gæta hag­kvæmni í ferða­máta sínum.

Stjórn Hattar segir þó að „ekki fari saman hljóð og mynd“ ef félög geti í raun sjálf ákveðið hvort og að hvaða marki þau taki þátt í kostn­að­inum.

„Fordæmið sem þessu fylgir er vara­samt og sér­stak­lega þungt fyrir félög sem sjá fram á löng og kostn­að­ar­söm ferða­lög í flesta leiki,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Leikurinn gegn Haukum hefði kostað allt að 1,8 milljónir

Höttur átti að mæta Haukar í bik­arnum á mið­viku­dag, en stjórn félags­ins segir áætl­aðan kostnað vegna flugs og bíla­leigu­bíla fyrir þann leik hafa verið um 1,3 millj­ónir króna.

Þar sem um kvöld­leik á miðri viku var að ræða hefði einnig bæst við gist­ing og vinnu­tap leik­manna og þjálf­ara. Heild­ar­kostn­aður hefði því getað numið 1,5 til 1,8 millj­ónum króna.

Stjórnin segir sjálf­boða­liða félags­ins hvorki hafa tíma né orku til að standa í inn­heimtum vegna slíks kostn­aðar og telur eðli­legt að KSÍ hafi milli­göngu um greiðslur í stað þess að félög þurfi sjálf að leysa úr slíkum málum sín á milli.

Tekið er sér­stak­lega fram að Haukar beri enga ábyrgð á ákvörð­un­inni en hafi þó sýnt stöðu Hattar skiln­ing.

„Þegar allt er lagt saman telur stjórn Rekstr­ar­fé­lags Hattar fjár­hags­lega óábyrgt að taka þátt í keppn­inni á meðan reglu­verkið er ekki skýr­ara og ekki er tryggt að kostn­aði sé skipt með sann­gjörnum hætti milli félaga,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Sport

Sport

Lakers-goð­sögn mætir á OnlyFans

Lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meistari með liðinu tvö ár í röð
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félags­ins ráð­ast

Myndband
Sport

Lög­reglan kölluð til vegna þriggja ára fót­bolta­snill­ings

Sport

Ætlar að birta eina brjósta­mynd á dag þar til þjálf­ari Man Utd verður rek­inn

Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harka­lega