Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Söguleg breyting á 17. júní - frá fjörugum götudönsum í hoppukastala

„17. júní er ekki nema svipur hjá sjón frá því sem eitt sinn var“

Söguleg breyting á 17. júní - frá fjörugum götudönsum í hoppukastala
Egill Helgason Mynd: RÚV

Hátíð­ar­höld á þjóð­há­tíð­ar­deg­inum 17. júní hafa tekið stór­stígum breyt­ingum á síð­ustu ára­tugum. Þar sem áður ríkti mikil stemn­ing, götu­dansar og prúð­bú­inn mann­fjöldi í mið­bænum, ein­kenn­ist dag­ur­inn nú fremur af fámenn­ari barna­há­tíðum og færri við­burðum á kvöldin. Einn af þeim sem kallar eftir því að lífi sé blásið í þessa sögu­frægu hátíð á nýjan leik er fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason í pistli á Facebook síðu sinni.

„Ég á minn­ingu um að hafa fengið syk­ur­húðað epli á 17. júní. Þetta var tím­inn þegar öll börn voru prúð­búin á þjóð­há­tíð­ar­deg­inum. Litlir strákar voru klæddir eins og kallar, tískan var að setja á þá týróla­hatta með fjöður. Ég slapp sem betur fer við hatt­inn. Sumar stelpur voru í upp­hlut og flestar með slaufu í hár­inu og í sport­sokkum eins og það var kallað.

Það var miklu meira að ger­ast á 17. júní þá og maður hlakk­aði til dags­ins. Í bænum úði og grúði af sölu­tjöldum frá íþrótta­fé­lögum og félagaga­sam­tökum. Það voru skrúð­göngur og stór skemmtun í Miðbænum. Ekki man ég eftir því þegar Sin­fón­íu­hljóm­sveitin spil­aði á Aust­ur­velli á 17. júní, það er fyrir mína tíð, en ég man eftir gríð­ar­lega fjöl­mennum sam­komum Arn­ar­hóli. Bessa Bjarna­syni og Árna Tryggsyni á svið­inu í gervi Mikka refs og Lilla Klif­ur­músar. En Baldur og Konni voru fyrir minn tíma. (sjá mynd)“

Skjáskot/Þjóð­minja­safn Íslands

Tímarnir breyt­ast: Þróun hátíð­ar­innar sam­kvæmt Agli

  • Blóma­tím­inn á 20. öld: Börn mættu prúð­búin í mið­bæ­inn, margir strákar í týróla­höttum og stelpur í upp­hlut eða sport­sokkum. Sölu­tjöld íþrótta­fé­laga úðuðu og grúðu um allan bæ.
  • Skemmt­ana­hald á sviði: Gríð­ar­legur mann­fjöldi safn­að­ist saman á Arn­ar­hóli þar sem þjóð­þekktir leik­arar, eins og Bessi Bjarna­son og Árni Tryggva­son í gervi per­sóna úr Kar­demommu­bænum, skemmtu fólki.
  • Götu­dans­arnir frægu: Gömlu dans­arnir fóru fram við Alþing­is­húsið, dæg­ur­tón­list var á Lækj­ar­torgi og ung­lingar söfn­uð­ust saman við Morg­un­blaðs­húsið þar sem stórar hljóm­sveitir eins og Flowers spil­uðu.

„Um kvöldið var dansað í Mið­borg­inni. Ef ég man rétt voru gömlu dans­arnir á plan­inu við Alþing­is­húsið, gjarnan hljóm­sveit Guðjóns Matth­í­as­sonar. Léttar hljóm­sveitir eins og Svavars Gests og Ólafs Gauks voru Lækj­ar­torgi en ung­ling­arnir fengu sína músík framan við Morg­un­blaðs­húsið.Ég var mið­bæj­ar­barn, átti heima við gamla kirkju­garð­inn og var far­inn að fara einn í bæinn 6-7 ára gam­all. Ég man sér­stak­lega vel eftir hljóm­sveit­inni Flowers að spila við Moggan­húsið. Þar voru í hópi musí­k­anta Björgvin Hall­dórs­son, Karl Sig­hvats­son og Gunnar Jökull. Mér fannst það stór­kost­leg upp­lifun.

Það var vesen með fyll­erí, vissu­lega. Keyrði víst um þver­bak ein­hver ár og ég barnið man eftir blind­fullum ung­lingum. Nýstúd­entar útskrif­uð­ust 17. júní, settu svip á bæinn og voru glaðir og reifir.Svo ákveðið að grípa í taumana og þá var beitt heldur betur skringi­legum aðferðum. Það var mikið um boð og bönn á Íslandi á þessum árum. Veit­ingar utandyra þekkt­ust til dæmis ekki, það var harð­bannað.“

Forsjárhyggja og boð og bönn

Á sjö­unda og átt­unda ára­tugnum gripu yfir­völd til rót­tækra aðgerða til að tak­marka drykkju og mann­söfnuð í mið­bænum. Hátíð­ar­höldin voru meðal ann­ars flutt tíma­bundið inn á Laug­ar­dals­völl í tvö ár, þar sem dag­skráin fólst í ávörpum og íþrótta­mótum, sem mörgum þótti hund­leið­in­legt. Seinna voru dans­leikir kvölds­ins færðir í skóla­portin til að dreifa mann­fjöld­anum.

„Í tvö ár á sjö­unda ára­tugnum voru hátíð­ar­höldin færð inn í Laug­ar­dal. Reyk­vík­ingum var smalað á Laug­ar­dals­völl­inn, látnir hlusta þar á ávarp fjall­kon­unar og horfa á kúlu­varp. Svo var sund­mót í nýju Laug­ar­dags­laug­inni. Ég man að þetta var alveg hund­leið­in­legt. Þetta var á tíma þegar borg­ar­stjórn­inni var í raun meinilla við Miðbæinn; vildi helst setja hann niður í Kringlu­mýri og kalla Nýja Miðbæinn. For­sjár­hyggjan reið heldur ekki við einteym­ing. Eftir 1970 voru dans­leik­irnir að kvöldi 17. júní færðir á lóðir skól­anna í bænum til að koma í veg fyrir mann­söfnuð í Mið­borg­inni. Það var líka hund­leið­in­legt, engin stemm­ing þótt ágætar hljóm­sveitir træðu upp stundum upp í skóla­port­unum.

Svo var aftur farið með hátíð­ina niður í Miðbæ. Það gekk mest­an­part slysa­laust. Borg­ar­búar fjöl­menntu á bæði dag- og kvöld­skemmt­anir og það var minna um fyll­erí en áður. En ein­hvern veg­inn fór að fjara undan 17. júní og þegar komið var fram á nýja öld var líkt og áhug­inn á hátíð­inni væri hverf­andi. Áherslan hjá borg­ar­yf­ir­völdum færð­ist yfir á Gay Pride og Menn­ing­arnótt en 17. júní sat á hak­anum. Það var látið nægja að halda dálitla hátíð fyrir börnin – nokkra hoppukast­ala – en kvöld­skemmt­an­irnar voru með öllu aflagðar. Þannig er það nú og 17. júní er ekki nema svipur hjá sjón frá því sem eitt sinn var. Ég fylgd­ist með frekar fámennri skrúð­göngu fara niður Lauga­veg­inn. Kannski var gleði­leg­ast við göng­una hversu margir inn­flytj­endur voru í henni – með íslenska fána. En það heyrð­ist ekki mikil tón­list. Bara ein lúðra­sveit fremst og þátt­tak­endur voru ekki ýkja líf­legir.“

Egill kallar eftir breyt­ingum og segir að lokum.

„Væri kannski vert að gera betur á þessum hátíð­is­degi? Hafa meira fjör? Fjöl­breytt­ari skemmtun? Fyrir unga og aldna? Ekki bara vegna þess að hann er dagur þjóð­ar­innar heldur lika vegna þess að gott er að fagna saman snemm­sum­ars þegar landið er orðið grænt og ljúft.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ