Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Surasang frosnum ostrum sem Dai Phat flytur inn og selur í sinni verslun vegna nóvóveiru. Fyrirtækið hefur i samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.
Tilkynningin barst til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.































Athugasemdir