Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Fólk

Glæsileg fjöl­skyldupara­dís í Graf­ar­vogi leitar nýrra eig­enda

Tekin með 79 tvöfalda smokka innvortis

Tekin með 79 tvöfalda smokka innvortis
Kefla­vík­ur­flug­völlur Mynd: Víkingur

Þrír kól­umbískir rík­is­borg­arar hafa verið dæmdir í Hér­aðs­dómi Reykja­ness fyrir stór­fellt fíkni­efna­laga­brot eftir að hafa flutt sam­tals 2.370 milli­lítra af kóka­íni á vökva­formi til Íslands í febr­úar á þessu ári.

Hinir dæmdu eru Camilo Jose Torrijo Abella, Juan Guill­ermo Lopez Tapias og Victoria Judith Mendoza Velasquez. Samkvæmt dómnum komu þau til lands­ins með flugi frá París til Kefla­vík­ur­flug­vallar 19. febr­úar 2026 með kóka­ínið falið inn­vortis í fjöl­mörgum pakkn­ingum. Toll­verðir stöðv­uðu þau við kom­una og röntgen­rann­sóknir leiddu í ljós að öll voru með fíkni­efni inn­vortis.

Abella var með 450 milli­lítra af kóka­íni í 15 pakkn­ingum, Tapias var með 990 milli­lítra í 33 pakkn­ingum og Velasquez var með 930 milli­lítra í 31 pakkn­ingu. Rannsókn sýndi að efnið var kókaín á vökva­formi með um 52–54 pró­senta styrk­leika og ætlað til sölu­dreif­ingar hér á landi í ágóða­skyni.

Dómurinn taldi sannað að Tapias og Velasquez hefðu staðið saman að inn­flutn­ingi þeirra fíkni­efna sem hvort um sig flutti. Hins vegar þótti ekki hafið yfir skyn­sam­legan vafa að Abella hefði verið í sam­verkn­aði með þeim tveimur, þótt öll hefðu ferð­ast saman til lands­ins og verið í sam­skiptum á leið­inni. Þau voru því ekki sak­felld fyrir sam­eig­in­legan inn­flutn­ing allra efn­anna heldur hvert fyrir sinn þátt í brot­inu.

Abella var dæmdur í sjö mán­aða fang­elsi en Tapias og Velasquez hlutu hvort um sig 30 mán­aða fang­els­is­dóm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Níu ára stúlka lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Kanarí­eyjum

Ekki hefur verið greint frá nafni stúlkunnar eða þjóðerni hennar.
Heimur

Dæmd í fang­elsi fyrir að van­rækja börn og fela þau fyrir for­eldrum

Pólitík

Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Innlent

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Forstjóri Stjörnugríss líkir honum við Hamas-liða
Innlent

Ung kona dæmd fyrir aðild að stór­felldu kóka­ín­máli

Innlent

Fimm erlendir feður kall­aðir fyrir sýslu­mann vegna barna sinna

Innlent

Akur­eyr­ingur ákærður fyrir hrotta­lega kylfu­árás á sam­býl­is­mann

Innlent

„Morg­un­blaðið heldur ræg­ing­ar­her­ferð sinni gegn múslimum áfram“

Innlent

Faðir kvart­aði of snemma undan barna­vernd