Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Örlítið sárt að hugsa til þess að það verði skorið á þetta akkeri“

„Þau eru greypt í ann­ars full­kom­lega ólystugt iðn­að­ar­um­hverfi sem liggur við breiða og ómann­eskju­lega umferð­ar­götu.“

„Örlítið sárt að hugsa til þess að það verði skorið á þetta akkeri“
Brynja Sveins­dóttir, for­stöðu­maður Gerða­safns og Hrafn Jónsson, pistla­höf­undur. Brynja segir eðli­legt að fólk spyrji sig hvort ekki megi ein­fald­lega bara bjarga verk­inu en rífa húsið? Mynd: Samsett mynd

Í per­sónu­legum pistli Hrafn Jónsson, pistla­höf­und á síðu sinni Útsýnið úr fíla­beins­turn­inum veltir Hrafn fyrir sér mik­il­vægi þess að umhverfið í Reykja­vík, bæði nátt­úra og mann­gerð list, virki sem akk­eri fyrir ímynd­un­ar­afl og sál­ar­líf borg­ar­búa. Hann gagn­rýnir aukna áherslu á skil­virkni og hag­ræð­ingu í skipu­lags­málum, þar sem áhersla á kostn­að­ar­hag­kvæmni á kostnað menn­ingar- og umhverf­is­gæða getur rýrt lífs­gæði.

Ástæða þessa pistils er að rífa á iðn­að­ar­húsi að Duggu­vogi 42 við Sæbraut þar sem til stendur að gera tíma­bundna hjá­leið fyrir umferð á fram­kvæmda­tíma Sæbraut­ar­stokks. Brynja Sveins­dóttir safn­stjóri Gerð­ar­safns gerði alvar­lega athuga­semd við nið­ur­rifið í frétt á Vísi. Ástæðan er lista­verk Gerðar Helga­dóttur sem steypt er í vest­ur­vegg húss­ins.

Brynja segir eðli­legt að fólk spyrji sig hvort ekki megi ein­fald­lega bara bjarga verk­inu en rífa húsið?

„En það er ekki svo auð­velt að gera það, þetta er verk sem er steypt beint í húsið, þetta er lág­mynd sem er steypt inn þegar húsið er í bygg­ingu, þannig það er alls ekki víst að það verði hægt að bjarga því og eins er verkið mjög sam­ofið hús­inu sjálfu, það er gert fyrir upp­runa­lega starf­semi húss­ins, þar sem þetta vísar í iðn­að­inn á svæð­inu, þetta vísar í iðn­að­ar­sögu svæð­is­ins alls.“

Menningarminjar úr löngu horfnum heimi

Hrafn vill meina að þessi umhverf­is­list sé kveikja fyrir ímynd­un­ar­aflið. „Ég hef alltaf verið með virkt ímynd­un­ar­afl, og á Sæbraut­inni eru þessi sterku umhverfis-akk­eri sem í æsku minni ég tengdi alltaf svo sterkt við. Ann­ars­vegar verk Sig­ur­jóns Ólafs­sonar utan á iðn­að­ar­hús­inu við Sunda­borg sem minna helst á hella­teikn­ing­arnar í Lascaux; eins og ein­hverjar menn­ing­arminjar úr löngu horfnum heimi.

Og svo lág­myndir Gerðar Helga­dóttur neðar í göt­unni, sem eru meira eins og skila­boð frá ann­ari ver­öld; korn­hringir sem mynd­ast á ökrum. Það kveikti því á ein­hverju hjá mér þegar ég las að það lægi fyrir að rífa þyrfti iðn­að­ar­hús­næðið sem verk Gerðar eru steypt í. Fórn­ar­lamb fram­þró­unar borg­ar­innar.

Ég ætla ekki að fara og mynda skjald­borg um iðn­ð­að­ar­hús­næði nærri Sunda­höfn og krefj­ast þess að það verði friðað. En það er eitt­hvað örlítið sárt að hugsa til þess að það verði skorið á þetta akk­eri.

Þetta verk, eins og önnur umhverf­is­list eru kveikjur. Kveikjur fyrir ímynd­un­ar­aflið. Áferð í umhverf­inu sem er ekki bara hrein fúnk­sjón. Ætli það sem auki áhrifin enn frekar sé ekki sú stað­reynd að þau eru greypt í ann­ars full­kom­lega ólystugt iðn­að­ar­um­hverfi sem liggur við breiða og ómann­eskju­lega umferð­ar­götu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ