Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sebastian nefbraut ungmenni við strætóskýli

Sagt að brota­þoli hafi notað orðin „nigg­ari“ og „slave“ og „negri“

Sebastian nefbraut ungmenni við strætóskýli
Fólk að stíga um borð í stræt­is­vagn Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Sebast­ian Burbano Miranda hefur verið dæmdur í 30 daga skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir lík­ams­árás gegn ungum manni við strætó­skýli í Reykja­vík 1. apríl 2023.

Málið var höfðað á hendur Sebast­ian og öðrum manni vegna tveggja árása sama kvöld. Samkvæmt ákæru hafði hinn mað­ur­inn fyrst kýlt brota­þola í and­lit utandyra við verslun í Reykja­vík. Skömmu síðar var ráð­ist á brota­þola við strætó­skýli, þar sem ákæru­valdið taldi að báðir ákærðu hefðu kýlt hann í and­litið. Brota­þoli hlaut nef­beins­brot og brot á vanga- og kinn­kjálka­beinum.

Ákærðu neit­uðu báðir sök. Hinn mað­ur­inn við­ur­kenndi þó að hafa slegið brota­þola við versl­un­ina en neit­aði að hafa komið að árásinni við strætó­skýlið. Sebast­ian neit­aði því að hafa verið á vett­vangi við strætó­skýlið og kvaðst ekki hafa slegið brota­þola. Samkvæmt mann­inum hafði brota­þoli kallað hann „nigg­ara“ og „slave“ og „negra“ en brota­þoli hafn­aði því.

Við með­ferð máls­ins kom fram að frá­sagnir brota­þola og vitna hjá lög­reglu hefðu að nokkru bland­ast saman, enda var um tvær árásir að ræða með stuttu milli­bili. Dómurinn taldi hins vegar að fram­burðir fyrir dómi hefðu skýrt málið nægi­lega.

Dómurinn komst að þeirri nið­ur­stöðu að ósannað væri að högg hins manns­ins við versl­un­ina hefði valdið bein­brotum brota­þola. Háttsemi hans félli því undir væg­ara ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um lík­ams­árás. Þar sem brotið var orðið fyrnt þegar ákæra var gefin út var hinn mað­ur­inn sýkn­aður.

Sebast­ian var hins vegar sak­felldur fyrir að hafa kýlt brota­þola í and­litið við strætó­skýlið með þeim afleið­ingum að hann nef­brotn­aði. Dómurinn taldi sannað, gegn neitun Sebast­ian, að hann hefði veitt höggið. Fram­burður brota­þola og vitna þótti styðja þá nið­ur­stöðu, auk lækn­is­gagna og mynda af áverkum.

Við ákvörðun refs­ingar var litið til þess að árásin beind­ist að höfði brota­þola, var til­efn­is­laus og hafði í för með sér nef­beina­brot. Til mild­unar var horft til ungs ald­urs Sebast­ian þegar brotið var framið og þess að hann hafði ekki fyrri saka­feril þegar málið kom upp.

Sebast­ian var dæmdur í 30 daga fang­elsi, en fulln­ustu refs­ing­ar­innar var frestað skil­orðs­bundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða brota­þola 500 þús­und krónur í miska­bætur, auk vaxta, drátt­ar­vaxta og 700 þús­und króna í máls­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ