Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Heimur

David Walliams sak­aður um að hafa tælt ung­lings­stúlkur

Lögreglan kom auga á virkilega grunsamlegan mann

Lögreglumaður að störfum
Lög­reglu­maður að störfum Mynd: Víkingur

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði í nógu að snú­ast í nótt og í gær­kvöldi og kom meðal ann­ars að rann­sókn alvar­legrar hnífa­árásar, inn­broti, þjófn­aði og akstri undir áhrifum áfengis og fíkni­efna.

Til­kynn­ing barst um blóð­ugan mann sem hafði orðið fyrir lík­ams­árás. Við nán­ari athugun kom í ljós að hann hafði verið stung­inn með hnífi. Grein­ar­góð lýs­ing á meintum árás­armanni fylgdi til­kynn­ing­unni og hafði lög­regla upp á honum skömmu síðar. Var hann hand­tek­inn og vistaður í fanga­klefa. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á bráða­mót­töku til aðhlynn­ingar. Málið er til rann­sóknar.

Þá var lög­reglu til­kynnt um yfir­stand­andi inn­brot í fyr­ir­tæki. Þegar lög­reglu­menn komu á vett­vang var meintur ger­andi enn inni í hús­næð­inu og var hann hand­tek­inn. Hann reynd­ist vera í ann­ar­legu ástandi og var vistaður í fanga­klefa þar til unnt verður að ræða við hann.

Lögregla hafði einnig afskipti af manni sem grun­aður var um að vera með stolið reið­hjól. Grunur vakn­aði þar sem hann hélt á hjól­inu með lás­inn enn fastan við hjóla­bún­að­inn. Maðurinn var fluttur á lög­reglu­stöð til við­ræðna og reið­hjól­inu komið í örugga vörslu.

Í öðru máli var lög­regla kölluð til að vísa ein­stak­lingi út úr íbúð og var það mál leyst á vett­vangi. Einnig var til­kynnt um þjófnað úr mat­vöru­verslun sem afgreiddur var á staðnum.

Tveir öku­menn voru stöðv­aðir við almennt umferð­ar­eft­ir­lit. Annar reynd­ist ölv­aður undir stýri og jafn­framt sviptur öku­rétt­indum vegna sam­bæri­legra brota. Hinn reynd­ist vera undir áhrifum fíkni­efna við akstur. Báðir voru fluttir á lög­reglu­stöð í hefð­bundið ferli og látnir lausir að því loknu.

Loks stöðv­aði lög­regla tvö ung­menni á vespu þar sem hvor­ugt þeirra var með hjálm. Málið var afgreitt á vett­vangi en lög­regla ítrekar mik­il­vægi þess að for­eldrar brýni fyrir ung­mennum nauð­syn þess að nota við­eig­andi hlífð­ar­búnað við akstur á vespum og öðrum sam­bæri­legum far­ar­tækjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Heimur

Hundruð skóla rýmdir vegna sprengju­hót­ana í Skotlandi og á Norður-Írlandi

Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Innlent

Innlent

Inn­köllun vegna eld­hættu í þremur teg­undum Volkswagen-raf­bíla

Eigendur hvattir til að hlaða bifreiðar sínar ekki umfram 80 prósent.
Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir