Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segja ólöglega landnemabyggð hafa svipt fjölskylduna lífsviðurværi sínu

„Óttinn er orð­inn hluti af dag­legu lífi okkar.“

Segja ólöglega landnemabyggð hafa svipt fjölskylduna lífsviðurværi sínu
Palest­ínsk skóla­börn Skóla­börnin neyð­ast til að ganga lengri leið úr skól­anum eftir að ólög­legir land­nemar reistu gadda­vírs­girð­ingu fyrir flýti­leið­ina Mynd: HAZEM BADER / AFP

Íbúar í Masafer Yatta, sam­an­safni smá­þorpa á suð­ur­hluta hernumda Vest­ur­bakk­ans, segja ísra­elskan her og land­nema þrengja sífellt meira að sér, í sam­tali við Al Jazeera.

Í þorp­inu Umm al-Khair hefur ný ólög­leg land­nema­byggð, sem reist var í sept­em­ber síð­ast­liðnum sem fram­leng­ing á land­nema­byggð­inni Carmel, orðið til þess að palest­ínskar fjöl­skyldur segja sér gert nán­ast ómögu­legt að lifa eðli­legu lífi á eigin landi.

Salem og Ikhlas al-Hathaleen búa ásamt átta börnum sínum í ein­földu húsi klæddu báru­járni. Landið í kringum heim­ili þeirra nýtt­ist áður til beitar og rækt­unar, en nú hefur land­nema­byggð verið reist aðeins um 20 metra frá hús­inu.

Ikhlas segir að áður hafi morg­un­rútínan falist í því að gefa sauðfé fjöl­skyld­unnar vatn og fóður, mjólka það og hleypa því á beit.

Það sé hins vegar ekki lengur mögu­legt.

Að hennar sögn var fjöl­skyld­unni fyrst meinað í fjóra daga sam­fleytt að kom­ast að fjár­hús­unum. Síðar hafi hún aðeins fengið að fara þangað undir fylgd ísra­el­skra her­manna til að gefa dýr­unum mat og vatn áður en henni var aftur bann­aður aðgangur. Í júlí hafi fjöl­skyldan aðeins þrisvar sinnum fengið að líta eftir búfé sínu.

„Ég horfi á hverjum morgni til að sjá hvort kind­urnar séu enn á lífi,“ segir Ikhlas. „Ég óska þess eins að geta kom­ist til þeirra og sinnt þeim eins og ég gerði áður.“

Erfitt að komast jafnvel á salernið

Ekki eru það aðeins fjár­húsin sem fjöl­skyldan á erfitt með að kom­ast að.

Salerni heim­il­is­ins stendur í sér­bygg­ingu nokkrum metrum frá hús­inu. Ikhlas segir að land­nemar hafi í byrjun júlí komið fyrir gadda­vír og leik­vall­ar­tækjum við sal­ernið til að tor­velda aðgang, sér­stak­lega fyrir börn og aldr­aða.

Síðar hafi ísra­elski her­inn lýst svæðið lokað hern­að­ar­svæði. Af þeim sökum hafi fjöl­skyldan neyðst til að nota sal­erni nágranna, þrátt fyrir að þurfa að fara yfir veg sem land­nemar noti.

Ikhlas segir að fimm ára dóttir hennar, Swar, hafi slasast þegar hún varð fyrir bíl á þeim vegi í ágúst á síð­asta ári.

„Við munum ekki yfir­gefa landið okkar,“ segir hún. „Jafnvel þótt við þurfum að búa í tjaldi eða undir tré, þá verðum við hér.“

Segja landnemabyggðir stækka hratt

Íbúar Umm al-Khair segja árásum land­nema hafa fjölgað veru­lega frá því stríðið á Gaza hófst í októ­ber 2023. Samhliða því hafi land­nema­byggðir á Vest­ur­bakk­anum og í Austur-Jer­úsalem haldið áfram að stækka.

Þrátt fyrir að ísra­elskur dóm­stóll hafi fyr­ir­skipað í októ­ber síð­ast­liðnum að nýja land­nema­byggðin yrði fjar­lægð segir frétt Al Jazeera að ákvörð­unin hafi síðar verið felld úr gildi eftir að her­inn hafi ekki fram­fylgt henni.

Khalil al-Hathaleen, for­maður þorps­ráðs Umm al-Khair, segir að stækkun land­nema­byggða hafi haft alvar­leg áhrif á lífs­við­ur­væri íbú­anna.

Að hans sögn hefur sauðfé í eigu íbúa fækkað úr um 3.000 dýrum í um 700 vegna sífellt erf­ið­ari aðstæðna. Hann segir jafn­framt að meira en 1.000 ólífu­tré hafi verið felld, um 50 þús­und fer­metrar rækt­ar­lands teknir yfir og nið­ur­rifs­skip­anir gefnar út vegna 14 húsa og ann­arra mann­virkja.

„Fyrir íbúa Umm al-Khair þýðir það að missa aðgang að landi sínu ekki aðeins að missa eignir,“ segir Khalil. „Það þýðir að missa heilan lífs­stíl sem hefur verið við lýði kyn­slóð fram af kyn­slóð.“

Börn segja óttann orðinn hluta af daglegu lífi

Ahmed al-Hathaleen, íbúi í þorp­inu, hefur safnað mynd­bands­upp­tökum og ljós­myndum sem hann segir sýna það sem íbú­arnir upp­lifa.

Hann segir börnin verða verst úti og að sum þeirra glími við martraðir vegna ástands­ins.

Tólf ára dreng­ur­inn Sahm Khalil al-Hathaleen segir að börnin hafi misst stóran hluta af æsku sinni.

„Börnin hér vilja bara lifa eins og önnur börn,“ segir hann.

Hann seg­ist vakna skelfdur á næt­urnar við minnsta hljóð utan við húsið.

„Óttinn er orð­inn hluti af dag­legu lífi okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta