Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi

„Ég vil ekki búa í landi þar sem konur eru þving­aðar til þess að ganga með slæður.“

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi
Stefán Einar Stef­áns­son stýrir þætt­inum Spursmál Mynd: Skjáskot / mbl.is

Fjöl­miðla- og Sjálf­stæð­is­mað­ur­inn Stefán Einar Stef­áns­son segir íslensk stjórn­völd þurfa að taka mun fastar á mál­efnum inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda og telur að dæmum um árekstra ólíkra menn­ing­ar­heima hér á landi hafi fjölgað. Þetta kemur fram í við­tali við Sölva Tryggva­son í hlað­varps­þætti hans.

Stefán gagn­rýnir meðal ann­ars starf­semi mosku við Bústaða­veg og heldur því fram að konur séu aðskildar frá körlum við bæna­hald. Hann lýsir aðstöð­unni sem „búri“ og seg­ist hafa undir höndum mynd­bönd frá sam­komum þar sem þetta sjá­ist.

„Þær biðja ekki með karl­mönn­unum, heldur eru settar inn í búr á meðan,“ segir Stefán. Hann telur að við­brögðin yrðu allt önnur ef sam­bæri­leg aðgrein­ing ætti sér stað innan Þjóð­kirkj­unnar.

Stefán vísar einnig til nýlegrar heim­sóknar múslima­predik­ara til Íslands og full­yrðir að við­kom­andi hafi talað fyrir því að íslenskt sam­fé­lag yrði íslamskt. Þá segir hann predik­ar­ann áður hafa sætt gagn­rýni fyrir öfga­fullar skoð­anir í garð sam­kyn­hneigðra.

Í við­tal­inu nefnir Stefán jafn­framt atvik á lands­móti skáta á Akureyri. Þar hafi hópur ungra drengja frá Katar, að hans sögn, sýnt stúlkum óvið­eig­andi hegðun og áreitni. Hann segir lög­reglu og barna­vernd­ar­yf­ir­völd hafa komið að mál­inu og hópnum að lokum verið vísað af mót­inu.

Stefán telur þessi mál sýna að íslenskt sam­fé­lag þurfi að standa fastar vörð um þau gildi sem hér hafi verið byggð upp.

„Ég vil ekki búa í landi þar sem konur eru þving­aðar til þess að ganga með slæður eða landi þar sem ungir drengir telja sér það ekki sam­boðið að konur kenni þeim í skóla­stof­unni,“ segir hann.

ESB ekki málið

Stefán gagn­rýnir einnig stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í Evr­ópu­málum og telur að stjórn­völd ættu frekar að ein­beita sér að verð­bólgu, vaxta­stigi og rík­is­fjár­málum. Hann segir sóun innan opin­bera kerf­is­ins mikla og nefnir meðal ann­ars bygg­ingu nýs Land­spít­ala og leik­skól­ans Brák­ar­borgar í því sam­hengi.

Hann segir að rík­is­stjórnin eigi að leggja áherslu á að ná tökum á rík­is­út­gjöldum og efna­hags­málum áður en ráð­ist verði í frek­ari veg­ferð í átt að Evr­ópu­sam­band­inu.

„Það að fara í þessa Evr­ópu­sam­bands­veg­ferð mun ekki laga þau verk­efni sem við stöndum frammi fyrir hér heima,“ segir Stefán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi