Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Limminnsti maður heims fer í aðgerð

Hann segist bæði þakklátur og spenntur

Michael Phillips
Michael Phillips Mynd: ITV

Bandaríkja­maðurinn Michael Phillips, sem segist vera með minnsta getnaðarlim í heimi, hefur ákveðið að gangast undir meðferð til að auka ummál limsins. Aðgerðin er fyrir­huguð 17. ágúst í Charlotte í Norður-Karólínu.

Phillips greinir frá þessu í samtali við TMZ. Um er að ræða meðferð þar sem fylliefni verður sprautað í getnaðar­liminn með það að markmiði að auka ummál hans. Kostnaðurinn við meðferðina verður tæplega fjögur þúsund Bandaríkja­dalir.

Phillips hafði áður stofnað til söfnunnar á GoFundMe til að fjármagna meðferð vegna ástandsins og hafa safnast þar meira en 13 þúsund dalir. Hann segir hluta þess fjár sem eftir stendur verða nýttan til að greiða fyrir læknis­heimsóknir, eftir­fylgni og lyf.

Phillips segist hafa verið greindur af lækni með svokallaðan örlim (e. micropenis). Hann hefur áður lýst því að getnaðar­limur hans sé um 0,38 tommur, eða tæpur einn sentí­metri, þegar hann er í reisn og að ástandið valdi honum meðal annars erfið­leikum við þvaglát.

Upphaf­lega hugðist Phillips gangast undir skurð­aðgerð en hætti við vegna þeirrar áhættu sem henni gæti fylgt. Hann ákvað þess í stað að fara í meðferð með fylliefni.

Læknir í Beverly Hills hafði áður boðist til að framkvæma meðferð á Phillips án endur­gjalds en hann ákvað að leita meðferðar nær heimili sínu. Phillips segist bæði þakklátur og spenntur fyrir aðgerðinni sem fram undan er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár