Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Framkvæmdastjóri dæmdur fyrir 100 milljóna skattsvik

Sagðist hafa treyst bók­ara sínum til að sjá um þessi mál

Framkvæmdastjóri dæmdur fyrir 100 milljóna skattsvik
Hafn­ar­fjörður Iceland tire ehf. hafði aðsetur í Hafn­ar­firði Mynd: Hafnarfjarðarbær

Muhammad Younas, fram­kvæmda­stjóri og eig­andi hjól­barða­fyr­ir­tæk­is­ins Iceland tire ehf., hefur verið dæmdur í 16 mán­aða fang­elsi fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bók­halds­lögum. Fang­els­is­refs­ingin er skil­orðs­bundin til tveggja ára.

Málið varð­aði rekstur Iceland tire á árunum 2017 til 2022. Samkvæmt ákæru voru rekstr­ar­tekjur félags­ins van­fram­taldar um tæpar 174 millj­ónir króna vegna rekstr­ar­ár­anna 2018 til 2021 og skatt­skyldur hagn­aður um rúmar 170 millj­ónir. Van­greiddur tekju­skattur vegna þessa nam rúmum 34 millj­ónum króna.

Þá voru virð­is­auka­skatts­skýrslur félags­ins rangar og nam van­greiddur virð­is­auka­skattur sam­tals tæpum 64,5 millj­ónum króna. Einnig var Muhammad ákærður fyrir að hafa rang­fært bók­hald félags­ins, meðal ann­ars með því að gefa ekki út sölu­reikn­inga vegna hluta söl­unnar og gefa út reikn­inga án þess að raun­veru­leg sala lægi að baki.
Muhammad neit­aði sök og byggði vörn sína meðal ann­ars á því að hann hefði falið bók­halds­stofu að sjá um bók­hald, fram­töl og skatt­skil fyr­ir­tæk­is­ins. Hann sagð­ist ekki kunna að lesa eða skrifa íslensku og hafa treyst bók­ara sínum til að sjá um þessi mál.

Dómurinn féllst ekki á þær málsvarnir. Þar kemur fram að Muhammad hafi verið stjórn­ar­maður, fram­kvæmda­stjóri og pró­kúru­hafi félags­ins og því borið ábyrgð á því að starf­semi og bók­hald þess væru í sam­ræmi við lög. Að fela bók­halds­stofu verk­efnin hafi ekki firrt hann þeirri ábyrgð. Dómurinn taldi hátt­semi hans fela í sér stór­fellt hirðu­leysi.
Við ákvörðun refs­ingar var meðal ann­ars horft til þess að brotin vörð­uðu umtals­verðar fjár­hæðir og stóðu yfir í langan tíma. Muhammad hafði þó ekki áður sætt refs­ingu.

Muhammad og félagið voru jafn­framt dæmd til að greiða óskipt rúm­lega 295,6 millj­óna króna sekt í rík­is­sjóð.

Verði sektin ekki greidd innan fjög­urra vikna skal Muhammad sæta 360 daga fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ