Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Kristín segir yfirmenn oftast gerendur í einelti á vinnustöðum

Viðbrögð vinnu­stað­anna hafa komið henni sér­stak­lega á óvart

Kristín segir yfirmenn oftast gerendur í einelti á vinnustöðum
Döpur kona Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Annie Spratt/Unsplash

Sextíu ein­elt­is­mál á vinnu­stöðum hafa ratað á borð Dreka­slóðar, sam­taka sem aðstoða þolendur ofbeldis, á und­an­förnum árum. Í aðeins einu til­viki var ger­and­inn karl­maður en í hinum mál­unum voru ger­endur konur.

Þetta varð kveikjan að meist­ara­rann­sókn Krist­ínar Helgu Magn­ús­dóttur, sem nýverið útskrif­að­ist úr heil­brigð­is­vís­indum frá Háskól­anum á Akureyri með áherslu á sál­ræn áföll og ofbeldi. Ritgerð hennar ber heitið „Ég var bara svona skugg­inn af sjálfri mér“.

Kristín ræddi við tíu ein­stak­linga sem höfðu orðið fyrir ein­elti á vinnu­stað, níu konur og einn karl­mann. Á Vísi sagði hún ein­elti kvenna oft vera lúm­skt og stig­vax­andi. Meðal birt­ing­ar­mynda væri að tala niður til ein­stak­linga og beita gas­lýs­ingu.

Að sögn Krist­ínar höfðu sumir við­mæl­endur hennar ekki áttað sig á því fyrr en eftir nokkra mán­uði, jafn­vel ár, að þeir væru þolendur ein­eltis. Í nokkrum til­vikum var það fag­maður, læknir eða starfs­maður Virk sem benti þeim á stöð­una.

Eineltið átti sér meðal ann­ars stað á heil­brigð­is­stofn­unum, í skólum og leik­skólum. Í flestum til­vikum var ger­and­inn yfir­maður en í tveimur til­vikum sam­starfs­kona.

Kristín segir við­brögð vinnu­stað­anna hafa komið sér sér­stak­lega á óvart. Allir við­mæl­endur hennar hættu á við­kom­andi vinnu­stað og í flestum til­vikum var ger­and­inn áfram í starfi.

Hún segir algengt að efa­semdir hafi komið fram um frá­sagnir þolenda þegar ein­eltið var til­kynnt og að ger­endur hafi oft sloppið með lítil við­ur­lög. Hún telur því mik­il­vægt að íslenskir vinnu­staðir bæti verk­lag sitt við með­ferð ein­elt­is­mála og tryggi að starfs­fólk viti hvert það geti leitað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu