Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

„Hann var bara fokking fyndinn!“

Magnús Scheving minn­ist félaga síns úr Latabæ

„Hann var bara fokking fyndinn!“
Steinn Ármann var húmoristi af guðs náð Mynd: Facebook/Latibær

Magnús Scheving, stofn­andi Lata­bæjar og sam­starfs­maður Steins Ármanns Magn­ús­sonar til margra ára minn­ist leik­ar­ans með dýpstu virð­ingu og hlýju í ein­lægum minn­ing­arp­istli á síðu Lata­bæjar. Steinn Ármann, sem lést nýverið um aldur fram, lék hlut­verk Sigga Sæta í yfir 400 sýn­ingum og ferð­að­ist um allt land með Magnúsi, sem fór með hlut­verk Íþrótta­álfs­ins.

Magnús Scheving minnist Steins Ármanns

Sorg­ar­fréttir bár­ust nýverið af skyndi­legu frá­falli leik­ar­ans Steins Ármanns Magn­ús­sonar. Magnús Scheving, sam­starfs­maður hans og vinur úr Latabæ minn­ist Steins sem ein­hvers besta leik­ara sem hann hafi unnið með og braut­ryðj­anda í íslensku gríni.

Spiluðu saman í yfir 400 sýningum

Leiðir þeirra Steins lágu fyrst saman árið 1996 þegar unnið var að leik­sýn­ing­unni Áfram Latibær í Loft­kast­al­anum og síðar í Þjóð­leik­hús­inu. Steinn gæddi per­són­una Sigga Sæta lífi á svið­inu á þann máta að eftir var tekið.

„Steinn Ármann og ég lékum saman í yfir 400 Lata­bæj­ar­sýn­ingum og ferð­uð­umst um allt land og skemmtum á fjöl­mörgum stöðum, ég sem Íþrótta­álf­ur­inn hann sem Siggi Sæti,“ skrifar Magnús. Hann lýsir Steini sem húmorista af guðs náð, gæddum þeim hæfi­leikum í leik­list sem ekki sé hægt að kenna.

Reyndi stöðugt að sprengja Íþróttaálfinn

Magnús segir Stein hafa haft ein­stakt lag á því að lesa áhorf­endur og koma sam­leik­urum sínum á óvart. Það hafi reglu­lega reynt á Magnús að halda and­lit­inu í hlut­verki Íþrótta­álfs­ins á svið­inu.

„Hann hafði enda­laust gaman af því að reyna að láta mig detta úr karakter á svið­inu. Hann hafði ein­stakt lag á því að lesa sal­inn og pota að svo drep­fyndnum línum að áhorf­endur velt­ust um úr hlátri og ég átti í mesta basli með að gera það ekki líka,“ segir Magnús.

Einstakur húmoristi

Að sögn Magnúsar krefst slíkur húmor mik­illar gáfna, næm­leika og skerpu, en allt þetta hafi Steinn haft til að bera. Í minn­ing­ar­orð­unum reynir Magnús að finna réttu orðin yfir miss­inn og dregur það saman:

„Ég er búinn að vera að leita að sett­legum orðum sem hæfa minn­ing­ar­grein um mann sem lést of ungur, en það sem lýsir honum best er bara hvað hann var fokk­ing fynd­inn!“

Magnús lýkur kveðju sinni á því að þakka Steini fyrir allt það sem hann gerði fyrir Latabæ og íslensku þjóð­ina alla og sendir fjöl­skyldu hans sínar dýpstu sam­úð­ar­kveðjur. „Steinn Ármann féll frá alltof snemma, það er ótrú­lega sárt að sjá eftir svo góðum dreng.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Minning

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Arnþór Örlygs­son er fall­inn frá

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína