Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Áfengisneysla eldra fólks vaxandi og stærra vandamál en talið er

„Stór hluti af þessu er svo fal­inn, líka fyrir okkur“

Áfengisneysla eldra fólks vaxandi og stærra vandamál en talið er
„Baby boomer“ kyn­slóðin og áfengi Breytt menn­ing og aukið aðgengi skapar vanda Mynd: Unsplash/Centre for ageing better

Áfeng­is­neysla meðal eldra fólks á Íslandi er vax­andi vanda­mál og fer að miklu leyti fram í felum. Þetta segir Ingi­björg Guð­munds­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og lýð­heilsu­fræð­ingur hjá Heilsu­gæsl­unni í Garðabæ í við­tali við Tíma­ritið Sjúkra­lið­inn. Ingi­björg, sem stundar klínískt meist­ara­nám í heilsu­gæslu­hjúkrun, hefur kynnt sér ítar­lega inn­lendar og erlendar rann­sóknir á þessu sviði og segir að ástandið sé lík­lega verra en almenn­ingur geri sér grein fyrir.

„Stór hluti af því er svo fal­inn, líka fyrir okkur,“ segir Ingi­björg þegar hún er spurð hvort vanda­málið sé jafn stórt og af er látið. „Þegar við eld­umst breyt­ist lík­ami okkar og lík­ams­starf­semi sem veldur því að við þolum áfengi verr lík­am­lega og áhrifin verða meiri á lík­amann en áður.“

„Baby boomer“ kynslóðin og breytt áfengismenning


Að sögn Ingi­bjargar má rekja aukn­ing­una meðal ann­ars til kyn­slóða­breyt­inga og þeirrar mark­aðs­setn­ingar sem dunið hefur á þeim hópum sem nú eru að fara á eft­ir­laun, svoköll­uðu „Baby boomer“ kyn­slóð­inni. Þessi hópur var á miðjum aldri þegar bjór­inn var lög­leiddur á Íslandi árið 1989.

„Áfeng­is­neysla var tengd við lúxus, að gera vel við sig, maður var ‚fínni‘ ef maður kunni að drekka og svo átti það að vera gott fyrir heils­una í hófi,“ útskýrir hún og bendir jafn­framt á að aðgengi hafi auk­ist gríð­ar­lega, sér­stak­lega með til­komu heim­send­ing­ar­þjón­ustu allan sól­ar­hring­inn. „Þetta aukna aðgengi kemur veru­lega niður á þeim sem eru veikir fyrir áfengi, ein­mana eða með skert hug­ar­starf. Við verðum að muna að áfengi er ekki venju­leg neyslu­vara.“

Alvarlegar afleiðingar og tíð föll


Afleið­ingar drykkj­unnar á eldri borg­ara eru marg­vís­legar og alvar­legar. Þar sem nýru og lifur starfa hægar er lík­am­inn lengur að vinna úr áfeng­inu. Eitt glas af víni hefur því mun meiri áhrif á jafn­vægi og sam­hæf­ingu hjá 75 ára ein­stak­lingi en þeim sem yngri eru. Þá getur áfengi truflað virkni lyfja, skert minnið, aukið líkur á þvag­leka og svima ásamt því að ræna fólk svefni og vöðva­styrk.

Áhrifin sjást greini­lega á vöktum heilsu­gæsl­unnar. „Við fáum mikið af eldra fólki, konur og karla til okkar á vakt­ina sem hefur verið að hrasa, hrufla sig eða með skurði á höfði. Oft eru þetta sömu ein­stak­ling­arnir sem eru að koma aftur og aftur, jafn­vel undir áhrifum,“ segir Ingi­björg.

Skimtæki og fordómaleysi á heilsugæslunni


Ingi­björg kallar eftir vit­und­ar­vakn­ingu og skerð­ingu á aðgengi fremur en aukn­ingu. Hún telur að lyk­ill­inn að úrbótum innan heil­brigð­is­kerf­is­ins felist í fræðslu og að þora að taka sam­talið. Þró­un­ar­mið­stöð íslenskrar heilsu­gæslu styðst nú við sér­stök skimtæki á borð við AUDIT og SMAST-G, sem er sér­hannað fyrir eldra fólk.

„Það mik­il­væg­asta er að spyrja alla út í áfeng­is­neyslu og gera það á for­dóma­lausan hátt. Það eitt að spyrja opnar á sam­talið um áfengi, gefur fólki leyfi til að spyrja og getur látið það end­ur­skoða neyslu sína þó að maður geri ekki neitt meira.“

Fram­tíð­ar­draumur Ingi­bjargar er að heilsu­gæslan ráði til sín áfeng­is­ráð­gjafa sem vinni í teymi með læknum og öldr­un­ar­hjúkr­un­ar­fræð­ingum og að hægt verði að bjóða upp á afeitr­un­ar­með­ferð og eft­ir­fylgni í heima­húsum. Hún bendir einnig á mik­il­vægi sjúkra­liða sem starfa í mik­illi nálægð við sjúk­linga og eru í kjör­stöðu til að ræða þessi mál af for­dóma­leysi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Húsið var reist árið 2014
Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum