Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Arkitekt lýsir yfir áhyggjum af „gúmmívæðingu“ leikvalla

„Öruggt þarf ekki að þýða fyr­ir­sjá­an­legt“

Arkitekt lýsir yfir áhyggjum af „gúmmívæðingu“ leikvalla
Hildur Gunn­laugs­dóttir, arki­tekt „Leik­svæði þarf ekki að vera þakið lit­ríku gúmmíi til þess að vera gott“ Mynd: Facebook/Hildur Gunnlaugsdóttir

Hildur Gunn­laugs­dóttir, arki­tekt hjá ASK arki­tektum, deilir áhyggjum sínum af þróun leik­valla­hönn­unar á opin­berum vett­vangi. Hún telur sam­fé­lagið hafa ýtt öryggis- og við­halds­kröfum svo langt að ævin­týrið og hinn frjálsi leikur barna séu að líða fyrir það.

Hildur varpar fram spurn­ingu til for­eldra og hönn­uða og spyr eftir dæmum um skemmti­lega leik­velli þar sem börn geta virki­lega gleymt sér. Hún bendir á að mörg nútíma leik­svæði séu hönnuð þannig að nán­ast allt sé fyr­ir­fram ákveðið.„Mér finnst við stundum vera komin svo­lítið langt í þá átt að hanna leik­svæði þar sem nán­ast allt er fyr­ir­fram ákveðið: hér á að róla, hér á að renna, hér á að klifra. Öruggt, lit­ríkt og auð­velt í við­haldi – en kannski ekki alltaf mjög ævin­týra­legt,“ segir Hildur í færslu sinni.

Kallar eftir náttúrulegum felustöðum

Að mati Hildar þurfa börn staði þar sem þau hafa frelsi til að skapa sinn eigin leik frá degi til dags, með því að nýta óstýrð tól og nátt­úru­leg efni. „Börn þurfa líka staði þar sem þau geta sjálf ákveðið hvað leik­ur­inn á að vera. Hóla, runna, gras, tré, steina, sand, mold og felu­staði. Eitthvað sem getur verið eitt í dag og allt annað á morgun,“ segir hún og minnir á mik­il­vægi þess að mann­eskjan sé hluti af nátt­úr­unni. Hún vísar máli sínu til stuðn­ings í finnska rann­sókn þar sem nátt­úru­legum skóg­ar­botni og gróðri var bætt inn á leik­svæði leik­skóla. Nið­ur­stöð­urnar sýndu að aðeins 28 dögum síðar mæld­ust jákvæðar breyt­ingar á örveruflóru og ónæm­is­kerfi barn­anna.

Kerfið setur strangar skorður

Hildur tekur fram að gagn­rýnin bein­ist alls ekki að lands­lags­arki­tektum sem hanna svæðin, heldur frekar þeim ströngu kröfum og ramma sem sam­fé­lagið setur þeim. Hönnuðir þurfi að upp­fylla strangar reglur um öryggi, aðgengi og rekstur. „Og auð­vitað eiga leik­svæði að vera örugg. En kannski höfum við sem sam­fé­lag ýtt kröf­unum aðeins of langt… Öruggt þarf ekki að þýða fyr­ir­sjá­an­legt. Og leik­svæði þarf ekki að vera þakið lit­ríku gúmmíi til þess að vera gott leik­svæði,“ segir Hildur að lokum.

Máli sínu til stuðn­ings gerði hún mynd­band þar sem hún fer yfir sínar hug­myndir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ