Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ísraelskur ráðherra segir herinn tilbúinn að „ljúka verkinu“ á Gaza

Í hern­að­ar­að­gerðum Ísraels á Gaza hafa meira en 73.700 Palest­ínu­menn látið lífið

Ísraelskur ráðherra segir herinn tilbúinn að „ljúka verkinu“ á Gaza
Israel Katz, varn­ar­mála­ráð­herra Ísraels og Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísrael Mynd: Menahem KAHANA / AFP

Varn­ar­mála­ráð­herra Ísraels, Israel Katz, segir aðeins tíma­spurs­mál hvenær Ísrael hefji á ný umfangs­mik­inn hernað á Gaza. Hann segir ísra­elska her­inn reiðu­bú­inn til að „ljúka verk­inu“ gegn Hamas og hrinda í kjöl­farið í fram­kvæmd áætlun um brott­flutn­ing Palest­ínu­manna frá Gaza.

Katz lét ummælin falla á mið­viku­dag þegar hann svar­aði gagn­rýni frá öðrum fram­bjóð­anda á hægri væng stjórn­mál­anna fyrir þing­kosn­ing­arnar í Ísrael 27. októ­ber.

Varn­ar­mála­ráð­herr­ann full­yrti að um 70 pró­sent Gaza hefðu þegar verið tæmd af íbúum sínum í hern­að­ar­að­gerðum Ísraels frá árás Hamas á Ísrael 7. októ­ber 2023. Nær allir íbúar Gaza hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín ein­hvern tíma frá upp­hafi stríðs­ins og stórir hlutar svæð­is­ins eru í rúst.

Katz sagði vopna­hléið, sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti í októ­ber 2025, hafa haft mikið gildi fyrir Ísrael. Það hefði meðal ann­ars leitt til heim­komu þeirra gísla sem eftir voru og tryggt skuld­bind­ingu Banda­ríkj­anna um afvopnun Hamas.

Hann sagð­ist hins vegar ekki telja að Hamas yrði afvopnað með þeim hætti sem gert hefði verið ráð fyrir.

„Við skiljum öll að þetta mun ekki ger­ast,“ sagði Katz og bætti við að ísra­elski her­inn væri til­bú­inn, fengi hann fyr­ir­mæli um það, að útrýma Hamas og „ljúka verk­inu“ svo hægt yrði að hrinda svo­kall­aðri fólks­flutn­inga­á­ætlun í fram­kvæmd.

Katz sagði fyrr í sept­em­ber að Ísrael væri reiðu­búið að auð­velda brott­för Palest­ínu­manna frá Gaza og hélt því fram að meiri­hluti íbú­anna vildi flytja þaðan. Banda­ríski sendi­herr­ann í Ísrael, Mike Huckabee, hefur hins vegar hafnað því að til standi að flytja íbúa Gaza á brott gegn vilja þeirra. Utan­rík­is­ráð­herra Ísraels, Gideon Saar, sagði jafn­framt 9. sept­em­ber að rík­is­stjórnin hefði engin áform um að vísa Palest­ínu­mönnum frá Gaza.

Árás Hamas og ann­arra víga­sam­taka 7. októ­ber 2023 kost­aði 1.221 mann lífið sam­kvæmt sam­an­tekt AFP sem byggir á opin­berum ísra­elskum tölum. Þá voru 251 teknir í gísl­ingu.

Í hern­að­ar­að­gerðum Ísraels á Gaza síðan þá hafa meira en 73.700 Palest­ínu­menn látið lífið sam­kvæmt heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu á Gaza. Ráðu­neytið greinir ekki á milli almennra borg­ara og víga­manna í heild­ar­tölum sínum. Þrátt fyrir vopna­hléið hafa árásir haldið áfram og sam­kvæmt ráðu­neyt­inu hafa 1.375 Palest­ínu­menn verið drepnir frá því það tók gildi.

Hamas lýsti því yfir í lok júlí að sam­tökin væru reiðu­búin til afvopn­unar. Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, hefur hins vegar hafnað næsta áfanga sam­komu­lags­ins og sagt að ísra­elskur her­afli verði ekki kall­aður frá Gaza fyrr en stað­fest hafi verið að Hamas hafi látið öll vopn af hendi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco