Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi

Dómurinn taldi að fram­burður hennar hefði verið ekki í sam­ræmi við gögn máls­ins

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi
Íslenskir seðlar Mynd: Bernhard Richter/Shutterstock

Auður Thorodd­sen hefur verið dæmd í fjög­urra mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir fjár­drátt í tengslum við leigu á fast­eignum á Tenerife á Spáni. Hér­aðs­dómur Reykja­ness kvað upp dóm­inn 24. sept­em­ber.

Auður var sak­felld fyrir að hafa dregið sér sam­tals rúm­lega 3,3 millj­ónir króna sem henni höfðu verið greiddar vegna fyr­ir­hug­aðrar leigu á hús­næði á Tenerife. Brotin voru framin á árunum 2018 og 2019.

Annar ákæru­lið­ur­inn laut að við­skiptum Auðar við Kjöl, stétt­ar­fé­lag starfs­manna í almanna­þjón­ustu. Félagið hafði samið við hana um leigu á fast­eign á Tenerife fyrir félags­menn sum­arið 2019. Kjölur greiddi henni sam­tals 22.500 evrur vegna leig­unnar og þjón­ustu tengdrar henni.

Samkvæmt nið­ur­stöðu dóms­ins greiddi Auður aðeins 5.000 evrur af þeirri fjár­hæð til hús­eig­and­ans. Rannsókn lög­reglu leiddi í ljós að hluti fjár­mun­anna fór þess í stað í per­sónu­leg útgjöld hennar.

Þegar félags­menn Kjalar komu til Tenerife var hús­næðið ekki til reiðu og þurfti félagið að útvega þeim aðra gist­ingu.

Hinn ákæru­lið­ur­inn varð­aði konu sem greiddi Auði sam­tals 930 þús­und krónur árið 2018 vegna leigu á húsi á Tenerife sum­arið eftir. Konan fékk hvorki húsið afhent né greiðsl­una end­ur­greidda.

Auður neit­aði sök og hélt því fram að hún hefði greitt hús­eig­endum, meðal ann­ars með reiðufé. Dómurinn taldi hins vegar að fram­burður hennar hefði verið ekki í sam­ræmi við gögn máls­ins. Hún hefði heldur ekki lagt fram gögn sem stað­festu meintar greiðslur og var hún því dæmd sek.

Við ákvörðun refs­ingar var meðal ann­ars horft til þess að um alvar­legt trún­að­ar­brot hefði verið að ræða. Á móti var tekið til­lit til þess hversu langt var liðið frá brot­unum og þess óhæfi­lega dráttar sem varð á rann­sókn og með­ferð máls­ins hjá lög­reglu og ákæru­valdi.

Auður var dæmd í fjög­urra mán­aða fang­elsi en fulln­ustu refs­ing­ar­innar frestað skil­orðs­bundið í tvö ár.

Þá var henni gert að greiða Kili 3.092.845 krónur auk vaxta og drátt­ar­vaxta, auk 500 þús­und króna í máls­kostnað.

Auði var jafn­framt gert að greiða rúmar 2,29 millj­ónir króna í málsvarn­ar­laun verj­anda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi