Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát

Dómari hafnaði beiðni Thomas um lausn gegn tryggingu

Danny Tommo
Danny Tommo Er að skemma bát Mynd: Skjáskot

Breski hægri öfga­maðurinn Daniel Thomas neitaði sök fyrir dómi í dag eftir að hafa verið ákærður fyrir eigna­spjöll vegna atviks á Ermar­sundi fyrr í vikunni. Thomas er betur þekktur undir viðurnefninu Danny Tommo og hefur verið áberandi í mótmælum gegn innflytjendum í Bretlandi.

Saksókn­arar halda því fram að Thomas, sem er 37 ára iðnaðar­maður, hafi skemmt uppblásinn bát með hnífi á meðan viðbragðs­aðili var um borð. Thomas kom fyrir dómara og neitaði sök. Hann neitaði einnig sök vegna ákæru um að hafa ekki afhent lögreglu PIN-númer að síma sínum.

Thomas hefur um árabil verið banda­maður hægri öfga­mannsins Tommy Robinson, sem heitir réttu nafni Stephen Yaxley-Lennon. Robinson var viðstaddur þing­haldið og sat í áhorfenda­stúku dómsalarins.

Dómari hafnaði beiðni Thomas um lausn gegn tryggingu og var hann úrskurðaður áfram í gæslu­varðhald fram að næstu dóms­meðferð, sem fer fram á þriðjudag.

Málið kemur upp á sama tíma og áfram ríkir mikil pólitísk spenna í Bretlandi vegna fjölda fólks sem reynir að komast yfir Ermarsund á smábátum frá Frakk­landi.

Alls komu 781 manns til Bretlands með þessum hætti á miðvikudag, sem var mesti fjöldi á einum degi það sem af er árinu. Samtals höfðu þá 18.565 manns farið þessa leið á árinu.

Bresk stjórn­völd hafa árum saman reynt að stemma stigu við siglingunum. Verkamanna­flokks­stjórnin hefur lagt áherslu á aðgerðir gegn glæpa­samtökum sem skipuleggja ferðirnar og aukið samstarf við nágranna­ríki Bretlands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku