Ljóst er að margir þingmenn og landsmenn séu ennþá að klóra sér í hausnum vegna ræðu Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, þann 23. september.
Mætti Guðmundur í pontu Alþingis til að reyna að verja hótun sem Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi ráðherra, fékk senda frá Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur, þáverandi aðstoðarmanni Guðmundar Inga, þegar hann lá á sjúkrahúsi. Voru skilaboðin augljóslega frá Ingu Sæland þar sem ráðherranum var tilkynnt að hann þyrfti að segja af sér embætti eða fara í stríð við sinn eigin flokk.
Guðmundur Ingi ákvað hins vegar í síðustu viku að taka hugrakkt skref og birta hótunina í viðtali við RÚV.
Vísaði Guðmundur Ari í hótunina sem „einhver skilaboð“ af óskiljanlegri ástæðu. Kemur þetta sérstaklega á óvart í ljósi þess að þingflokksformaðurinn starfaði árum saman í félagsmiðstöð þar sem starfsfólk leggur sig fram um að vernda fórnarlömb eineltisseggja en ekki öfugt ...
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir