Rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi segir allan undirbúning að kirkjubyggingu við Mýrargötu 21–23 vera lokið og fjármögnun liggja fyrir. Söfnuðurinn óskar eftir samtali við Reykjavíkurborg eftir að borgarráð ákvað að afturkalla lóðaúthlutunina.
Rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi harmar ákvörðun borgarráðs frá 8. október um að afturkalla lóðaúthlutun að Mýrargötu 21–23. Í yfirlýsingu sem send var á fjölmiðla í morgun segir söfnuðurinn að ákvörðunin hafi komið á óvart, enda hafi verið regluleg samskipti við Reykjavíkurborg um verkefnið á undanförnum árum.
Að sögn safnaðarins er undirbúningi kirkjubyggingarinnar lokið og fjármögnun liggur fyrir. Söfnuðurinn segir að einungis byggingarleyfi vanti til að hægt sé að hefja framkvæmdir.
„Ef við fengjum byggingarleyfið á morgun gætum við hafið framkvæmdir á morgun,“ segir í yfirlýsingunni.
Teikningar samþykktar í september
Í yfirlýsingunni kemur fram að söfnuðurinn hafi um árabil unnið að hönnun kirkjunnar og gerð nauðsynlegra verkfræðiteikninga. Samkvæmt honum voru síðustu teikningarnar samþykktar af Reykjavíkurborg 7. september síðastliðinn og umsóknin hafi verið tekin til afgreiðslu.
Söfnuðurinn segir fyrri tafir ekki hafa stafað af áhugaleysi. Covid-19-faraldurinn hafi stöðvað vinnuna um langt skeið, auk þess sem hönnuninni hafi verið breytt til að koma til móts við óskir íbúa í nágrenninu. Upphafleg stærð byggingarinnar hafi jafnframt verið minnkuð.
Þá hafi Reykjavíkurborg breytt deiliskipulagi svæðisins nokkrum sinnum frá árinu 2008.
Segja lóðina ekki hafa verið yfirgefna
Söfnuðurinn hafnar því að lóðin hafi verið yfirgefin. Hún hafi verið blessuð af háttsettum klerkum kirkjunnar að viðstöddum fyrrverandi forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni.
Samkvæmt yfirlýsingunni koma meðlimir safnaðarins saman á lóðinni á hverjum sunnudegi til bænahalds í lítilli bráðabirgðakapellu úr timbri sem helguð er heilögum Nikulási. Söfnuðurinn segir lóðina þegar hafa sérstaka trúarlega merkingu fyrir marga.
Rétttrúnaðarsöfnuðurinn þjónar fólki af fjölbreyttum uppruna og segir yfir þúsund trúaða sækja hann á hverju ári. Þar séu meðal annars Íslendingar, Úkraínumenn, Rússar, Serbar, Grikkir, Rúmenar og fólk frá ýmsum öðrum löndum.
Söfnuðurinn hefur lengi stefnt að því að reisa eigin kirkju í Reykjavík. Í yfirlýsingunni segir að byggingin eigi ekki aðeins að vera bænahús heldur einnig opinn samkomustaður fólks af ólíkum uppruna og falleg viðbót við borgarmynd Vesturbæjarins.
Óskar eftir samtali við yfirvöld
Söfnuðurinn telur að fara eigi varlega í málið og að mögulegt sé að grípa til vægari úrræða en að afturkalla lóðina.
Hann óskar eftir opnu samtali við fulltrúa Reykjavíkurborgar, önnur yfirvöld og alla stjórnmálaflokka með það að markmiði að finna lausn sem geri kleift að hrinda verkefninu í framkvæmd.
Í yfirlýsingunni er einnig boðið til samtals um hönnun kirkjunnar og þær áætlanir sem þegar liggja fyrir. Borgarstjóra, forseta Íslands og fulltrúum allra stjórnmálaflokka er jafnframt boðið að sækja sunnudagsguðsþjónustu safnaðarins að Öldugötu 44 í Vesturbænum klukkan 10.
Yfirlýsinguna undirritar Timur Zolotuskiy, sóknarprestur Rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi.































Athugasemdir