Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

„Við köllum eftir aðgerðum – ekki fleiri yfir­lýs­ingum“

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag
Frá fyrri mót­mælum Gengið verður frá Hlemmi að Aust­ur­velli Mynd: Víkingur

Félagið Ísland-Palest­ína og BDS Ísland efna til kröfu­göngu frá Hlemmi klukkan 13 í dag og sam­stöðu­fundar á Aust­ur­velli í kjöl­farið. Með aðgerð­unum vilja sam­tökin þrýsta á íslensk stjórn­völd um að grípa til aðgerða vegna ástands­ins í Palest­ínu.

Alþjóð­legt banda­lag fyrir Palest­ínu (Global Alliance for Palestine) hefur boðað til alþjóð­legs aðgerða­dags í dag, 10. októ­ber. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu taka hund­ruð sam­taka víða um heim þátt í sam­ræmdum aðgerðum til stuðn­ings frjálsri Palest­ínu.

Meðal þátt­tak­enda eru gras­rót­ar­hreyf­ingar, stúd­enta- og verka­lýðs­fé­lög og sam­tök sem berj­ast fyrir rétt­indum Palest­ínu­manna.

Í til­efni dags­ins standa félagið Ísland-Palest­ína og BDS Ísland fyrir kröfu­göngu frá Hlemmi klukkan 13. Að göng­unni lok­inni verður hald­inn sam­stöðu­fundur á Aust­ur­velli.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona og fram­kvæmda­stjóri Courage International, verður fund­ar­stjóri. Meðal ræðu­manna verður Montaser Dwikat frá Nablus á Vest­ur­bakk­anum og Svava Sig­berts­dóttir, einka­þjálf­ari og stofn­andi Viking Method. Páll Óskar Hjálmtýs­son tón­list­ar­maður flytur ræðu og tón­list í lok fund­ar­ins.

Krefjast aðgerða íslenskra stjórnvalda

Í frétta­til­kynn­ing­unni er lögð áhersla á að íslensk stjórn­völd hafi nýlega verið meðal tólf ríkja sem sendu frá sér yfir­lýs­ingu um fyr­ir­hug­aðar aðgerðir gegn við­skiptum með vörur frá ólög­legum land­töku­byggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palest­ínu.

Samtökin segja þó ekki hafa komið fram hvaða aðgerðir Ísland hygg­ist grípa til í fram­hald­inu.

„Þann 10. októ­ber krefj­umst við þess að íslensk stjórn­völd láti verkin tala,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þar er einnig vísað til þess að stuðn­ingur almenn­ings við rétt­indi Palest­ínu­manna hafi auk­ist veru­lega víða um heim frá því að þjóð­ar­morðið á Gaza hófst haustið 2023. Samtökin telja að aðgerða­leysi stjórn­mála­fólks og það sem þau kalla blekk­ingu um vopna­hlé hafi stuðlað að því að hörm­ung­ar­á­stand hald­ist á Gaza og Vest­ur­bakk­anum.

Vísa til mikillar eyðileggingar og mannfalls

Í til­kynn­ing­unni segja sam­tökin að að minnsta kosti 73.000 Palest­ínu­menn hafi verið drepnir á síð­ustu þremur árum, þar af meira en 18.000 börn. Þau vísa jafn­framt til þess að um 70 pró­sent mann­virkja og bygg­inga á Gaza hafi skemmst eða verið eyðilögð.

Þar segir jafn­framt að raun­veru­legur fjöldi lát­inna kunni að vera mun hærri.

Samtökin vísa einnig til áfram­hald­andi árása á Gaza eftir að vopna­hlé tók gildi og segja að árásir á sjúkra­hús og heil­brigð­is­starfs­fólk haldi áfram, auk þess sem mann­úð­ar­að­stoð sé hindruð.

Þá lýsa þau áhyggjum af auknu ofbeldi og land­ráni ísra­el­skra „land­ræn­ingja“ á hernumdum svæðum á Vest­ur­bakk­anum. Í til­kynn­ing­unni er vest­ræn ríki jafn­framt gagn­rýnd fyrir aðgerð­ar­leysi og stuðn­ing við Ísrael.

Ísland-Palest­ína og BDS Ísland segja að mark­miðið með aðgerð­unum sé að kalla eftir raun­veru­legum við­brögðum stjórn­valda fremur en yfir­lýs­ingum.

„Við köllum eftir aðgerðum – ekki fleiri yfir­lýs­ingum,“ segir að lokum í frétta­til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi