Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti

Menn­irnir á bak við sam­tökin hafa sjálfir ítrekað ratað í fjöl­miðla og skapað tals­verðar deilur

Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti
Sam­tök­unum þykir konur fá sér­með­ferð Mynd: Víkingur

Samtök um karla­at­hvarf fara hörðum orðum um Jafn­rétt­is­sjóð og Jafn­rétt­is­stofu og segja opin­bert jafn­rétt­is­kerfi á Íslandi hafa brugð­ist körlum og drengjum en þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ing frá sam­tök­unum. Samtökin benda meðal ann­ars á að konur stýri, sam­kvæmt þeirra eigin sam­an­tekt, 89 pró­sentum styrktra verk­efna sjóðs­ins og að aðeins eitt verk­efni undir stjórn karls hafi fengið styrk frá árinu 2021.

Menn­irnir á bak við sam­tökin hafa sjálfir ítrekað ratað í fjöl­miðla og skapað tals­verðar deilur.

Samtök um karla­at­hvarf voru stofnuð árið 2018. Við stofnun þeirra sátu Huginn Þór Grét­ars­son, Gunnar Kristinn Þórð­ar­son, Friðgeir Örn Hugi Ingi­bjarts­son og Kristinn Sæmunds­son í stjórn. Samtökin tengd­ust jafn­framt svoköll­uðum feðra­hreyf­ingum, þar á meðal #DaddyToo.

Huginn höfðað fjölda meiðyrðamála

Huginn Þór Grét­ars­son, barna­bóka­höf­undur og útgef­andi, hefur verið einn sýni­leg­asti for­svars­maður sam­tak­anna. Hann var jafn­framt í for­svari fyrir #DaddyToo, hóp feðra sem töldu sig hafa verið beitta órétti í deilum við barns­mæður sínar.

Huginn hefur vakið mikla athygli fyrir fjölda meið­yrða­mála sem hann hefur höfðað vegna ummæla sem fallið hafa um hann. Hann hefur bæði unnið og tapað slíkum málum.

Kristinn Sig­ur­jóns­son hefur einnig komið fram fyrir hönd Samtaka um karla­at­hvarf.

Kristinn starf­aði áður sem lektor við Háskól­ann í Reykja­vík en var sagt upp árið 2018 í kjöl­far ummæla sem hann lét falla um konur í lok­uðum Facebook-hópi sem nefnd­ist Karl­mennsku­spjallið.

Segja 89 prósent verkefna í höndum kvenna

Það eru þessi sam­tök sem beina nú spjótum sínum að Jafn­rétt­is­sjóði og segja töl­urnar tala sínu máli.

Samkvæmt sam­an­tekt þeirra stýra konur 115 af 129 styrktum verk­efnum þar sem kyn verk­efn­is­stjóra er þekkt, eða 89 pró­sentum. Frá árinu 2021 hafi aðeins einn af 29 styrkjum farið til verk­efnis sem karl stýrir.

Samtökin segja enn fremur að aðeins tíu af 161 verk­efni, eða sex pró­sent, fjalli sér­stak­lega um karla eða drengi. Konur stýri sex þess­ara tíu verk­efna.

Þau full­yrða jafn­framt að ekk­ert verk­efni fjalli sér­stak­lega um karla sem þolendur ofbeldis, feður í for­sjár­málum, sjálfs­víg karla eða brott­fall drengja úr námi. Á sama tíma hafi 20 verk­efni fjallað sér­stak­lega um ofbeldi gegn konum.

Þá segja sam­tökin kvenna­sam­tök hafa fengið 21 styrk úr Jafn­rétt­is­sjóði en sam­tök karla engan, þrátt fyrir að þau hafi sótt um.

Gagnrýna kvennastjórn sjóðsins

Tilefni yfir­lýs­ing­ar­innar er meðal ann­ars nýleg skipun Jar­þrúðar Ásmunds­dóttur sem for­manns Jafn­rétt­is­sjóðs.

Samtök um karla­at­hvarf benda á að Jar­þrúður sé fjórða konan í röð sem gegnir for­mennsku sjóðs­ins. Aðal­stjórn hans sé nú ein­göngu skipuð konum en allir þrír vara­menn séu karlar. Samtökin segja þá stöðu ganga gegn anda jafn­rétt­islaga.

Þau beina einnig sjónum að Háskóla Íslands og full­yrða að skól­inn hafi fengið meira en 210 millj­ónir króna úr sjóðnum. Jafn­framt starfi þrír af átta ein­stak­lingum í stjórn og fagráði sjóðs­ins við háskól­ann.

Jafn­rétt­is­stofa fær ekki síður á bauk­inn. Samtökin segj­ast hafa farið yfir 447 Facebook-færslur stofn­un­ar­innar og að 66 þeirra fjalli um konur og stúlkur en aðeins tvær um stöðu karla. Þá segja þau stofn­un­ina aldrei hafa minnst alþjóð­legs dags karla.

Fengu sjálfir milljónir þrátt fyrir efasemdir matsnefndar

Samtök um karla­at­hvarf hafa sjálf fengið opin­bert fé til að sinna mál­efnum karl­kyns þolenda ofbeldis.

Inga Sæland, þáver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, veitti sam­tök­unum 3,5 millj­óna króna styrk til stuðn­ings, ráð­gjafar og fræðslu fyrir karl­kyns þolendur ofbeldis.

Styrk­ur­inn vakti athygli þar sem sér­stök mats­nefnd ráðu­neyt­is­ins hafði gert veru­legan fyr­ir­vara við umsókn sam­tak­anna.

Nefndin benti ann­ars vegar á að umsókn þeirra væri sú eina sem næði sér­stak­lega til karla sem yrðu fyrir ofbeldi í nánum sam­böndum og að mála­flokk­ur­inn hefði ekki fengið mikla athygli.

Hins vegar taldi nefndin for­svars­menn Samtaka um karla­at­hvarf ekki réttu aðil­ana til að fram­kvæma verk­efnið, sem átti meðal ann­ars að fela í sér rann­sókn. Þrátt fyrir það ákvað ráð­herra að veita sam­tök­unum styrk­inn.

Nú snúa sam­tökin vörn í sókn og segja töl­fræði Jafn­rétt­is­sjóðs sýna kerf­is­bund­inn halla gegn verk­efnum sem snúa að körlum og drengjum. Tölurnar og álykt­an­irnar sem sam­tökin setja fram eru þeirra eigin sam­an­tekt og full­yrð­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ