Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Grímuklæddir lögreglumenn réðust inn og héldu skelfingu lostinni stúlku

Móðir hennar var vægast sagt ósátt

Lögreglumenn við störf
Lög­reglu­menn við störf Mynd: Víkingur

Móðir ungrar stúlku kvartaði til nefndar um eftirlit með lögreglu eftir að grímu­klæddir og óeinkennisklæddir lögreglu­menn réðust inn á heimili þar sem dóttir hennar var ein. Stúlkan tengdist rannsókn lögreglu ekki með neinum hætti.

Málið var tekið fyrir öðru sinni hjá nefndinni í haust eftir að ný gögn bárust sem studdu frásögn mæðgnanna.

Lögreglu­aðgerðin tengdist rannsókn á fíkniefna­innflutningi og beindist að leigjanda í húsinu. Lögreglan á Suðurnesjum kvaðst ekki hafa vitað að önnur íbúð væri þar.

Þegar lögreglu­mennirnir bönkuðu harkalega á rúðu hússins opnaði stúlkan dyrnar. Þar stóðu þrír menn með grímur fyrir vitunum. Hún varð hrædd og hljóp inn en einn mannanna elti hana, greip um hendur hennar og hélt þeim fyrir aftan bak. Stúlkan grét og kallaði á móður sína þar til lögreglu­kona útskýrði að mennirnir væru lögreglu­menn.

Stúlkunni var haldið í um 15 mínútur. Móðirin kvartaði meðal annars yfir því að dóttir hennar hefði ekki fengið að hafa samband við sig.

Lögreglan hafði áður ranglega haldið því fram að stúlkan hefði hringt í móður sína en símagögn sýndu hið gagnstæða. Lögreglan sagði síðar að um mistök hefði verið að ræða.

Nefndin taldi háttsemi lögreglu ekki beinlínis ámælis­verða en beindi þeim tilmælum til embættisins að hagsmunir barna yrðu sérstak­lega hafðir í huga við lögreglu­aðgerðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis