Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

„Lær­dóm­ur­inn var sá að seiglu er ekki hægt að byggja upp í miðri kreppu einni saman“

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Ólafur Ragnar Grímsson Er fyrr­ver­andi for­seti Íslands Mynd: BHJ

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands og núver­andi stjórn­ar­for­maður Arctic Circle, segir að raun­veru­leg seigla sam­fé­laga felist ekki aðeins í því að stand­ast áföll heldur einnig að læra af þeim og koma sterk­ari út úr erf­ið­leikum.

Ólafur Ragnar ræddi þessi mál í við­tali við Aylu Majid, stofn­anda og for­stjóra Planetive og full­trúa í Global Future Council Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins. Viðtalið birt­ist á EU Reporter og er greinin merkt sem skoð­ana­grein gesta­höf­undar.

Tilefni við­tals­ins var nýaf­staðið Arctic Circle Assembly í Reykja­vík. Þar var meðal ann­ars rætt um fram­tíð norð­ur­slóða og þær áskor­anir sem sam­fé­lög á köld­ustu svæðum heims standa frammi fyrir vegna lofts­lags­breyt­inga.

Seigla verður ekki byggð í miðri kreppu

Ólafur Ragnar segir í við­tal­inu hug­takið seiglu oft mis­skilið, en hann var sér­stak­lega spurður um það í við­tal­inu, og að það snú­ist um mun meira en að stand­ast ein­stök áföll.

„Raun­veru­leg seigla er miklu dýpri. Hún er geta sam­fé­lags til að þola ekki aðeins röskun heldur læra af henni, aðlag­ast henni og koma út úr henni með sterk­ari stofn­anir, meira traust og skýr­ari til­finn­ingu fyrir sam­eig­in­legum til­gangi,“ segir Ólafur Ragnar.

Hann vísar meðal ann­ars til reynslu sinnar úr for­seta­tíð­inni, á árunum 1996 til 2016, þegar íslenskt sam­fé­lag gekk í gegnum miklar efna­hags­legar og sam­fé­lags­legar svipt­ingar.

„Lær­dóm­ur­inn var sá að seiglu er ekki hægt að byggja upp í miðri kreppu einni saman. Hana verður að rækta löngu áður en kreppan skellur á, með menntun, félags­legri sam­heldni, vís­inda­legum skiln­ingi, opinni sam­fé­lags­um­ræðu og getu sam­fé­laga til að vinna saman.“

Ólafur Ragnar bendir jafn­framt á að ríki heims séu orðin svo sam­tengd að áföll á einum stað geti haft áhrif langt út fyrir landa­mæri. Fjár­málakreppur, heil­brigðisógnir og þrýst­ingur á mat­væli, vatn, orku og nátt­úru geti þannig haft áhrif á fólks­flutn­inga, öryggi og efna­hags­legan stöð­ug­leika víða um heim.

„Seigla verður því að vera bæði stað­bundin og alþjóð­leg. Hún verður að vera til staðar í þorpum, borgum, skólum, sjúkra­húsum og litlum fyr­ir­tækjum en jafn­framt studd af alþjóð­legri sam­vinnu og ábyrgri for­ystu,“ segir hann.

Hagvöxtur segir ekki alla söguna

Í við­tal­inu er Ólafur Ragnar einnig spurður hvernig meta eigi efna­hags­lega seiglu þegar horft er út fyrir hefð­bundna mæli­kvarða á borð við hag­vöxt og fjár­fest­ingu.

Hann segir slíka mæli­kvarða mik­il­væga en að þeir gefi ekki einir og sér full­nægj­andi mynd af styrk sam­fé­lags. Ekki sé hægt að tala um raun­veru­lega sterkt hag­kerfi ef stórir hópar fólks hafi ekki aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu, hreinu vatni, nær­ing­ar­ríkum mat, áreið­an­legri orku eða menntun og færni til að móta eigin fram­tíð.

„Við ættum ekki aðeins að spyrja hversu hratt hag­kerfi vex heldur hversu víða tæki­fær­unum er dreift. Við ættum að spyrja hvort vöxt­ur­inn styrki sam­fé­lög, skapi mann­sæm­andi störf, bæti heilsu og menntun og geri fólki kleift að lifa við meira öryggi og reisn,“ segir Ólafur Ragnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ