Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Stefán Pálsson varar við því að almenn­ings­bóka­söfn verði undir í breyt­ingum

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Hildur Björns­dóttir Stefán skýtur föstum skotum á borg­ar­stjór­ann Mynd: BHJ

Stefán Pálsson, sagn­fræð­ingur og vara­borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, gagn­rýnir við­brögð Hildar Björns­dóttur borg­ar­stjóra við gagn­rýni á til­lögur um fram­tíð Borg­ar­bóka­safns Reykja­víkur. Hann segir sam­rekstur almenn­ings­bóka­safna og skóla­bóka­safna geta gengið vel, en varar við því að almenn­ings­bóka­söfn verði ein­fald­lega felld inn í skóla­bóka­söfn.

Í færslu á Facebook bendir Stefán á að Hildur hafi svarað gagn­rýni á til­lögur menn­ing­ar­ráðs um rekstur Borg­ar­bóka­safns­ins með því að vísa til lélegs lesskiln­ings full­orð­inna. Hann telur aðra skýr­ingu geta verið þá að borg­ar­yf­ir­völd hafi ekki komið hug­myndum sínum nægi­lega skýrt á fram­færi.

„Nær­tæk­ari skýr­ing er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skilj­an­legum texta,“ skrifar Stefán og spyr jafn­framt hvort skyn­sam­legt hafi verið að reka alla upp­lýs­inga­full­trúa borg­ar­innar.

Stefán segir þó mik­il­vægt að ræða mál­efni bóka­safna af yfir­vegun. Hug­myndir um sam­rekstur úti­búa Borg­ar­bóka­safns­ins og skóla­bóka­safna séu ekki nýjar af nál­inni. Slíkar hug­myndir hafi meðal ann­ars verið ræddar á síð­asta kjör­tíma­bili og þeim komið í fram­kvæmd á Kjal­ar­nesi, þar sem fámennið geri sam­eig­in­legan rekstur að álit­legum kosti.

Hann nefnir Dalskóla í Úlf­arsár­dal sem dæmi um far­sæla útfærslu. Þar er teng­ing milli grunn­skól­ans, sund­laug­ar­innar, úti­bús Borg­ar­bóka­safns­ins og íþrótta­húss hverf­is­fé­lags­ins. Að hans mati sýnir dæmið hvernig öfl­ugt hverfa­bóka­safn getur jafn­framt sinnt hlut­verki skóla­bóka­safns.

Stefán leggur hins vegar áherslu á að ekki sé hægt að ganga út frá því að sama fyr­ir­komu­lag virki í hina átt­ina, það er að færa almenn­ings­bóka­söfn inn í skóla­bóka­söfn. Slíkt hafi verið reynt víða á land­inu og árang­ur­inn að hans mati yfir­leitt verið slakur.

Hann bendir á að nútíma­bóka­söfn séu ekki ein­göngu staðir þar sem fólk nálgist bækur, heldur einnig menn­ing­ar­stofn­anir og sam­komu­staðir fólks á ólíkum aldri og með mis­mun­andi áhuga­mál. Þar fari fram fjöl­breyttir við­burðir á mis­mun­andi tímum dags­ins, sem geti reynst erfitt að sam­ræma starf­semi skóla eins og þeir séu reknir í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ