Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Leiðtogi AfD sögð hafa vitað af ólög­legu kosn­ingafé fyrr en hún við­ur­kenndi

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Alice Weidel Tölvu­póstar varpa nýju ljósi á hneiksl­is­mál flokks­ins Mynd: RALF HIRSCHBERGER / AFP

Tölvu­póstar úr safni tölvu­pósta sem var stolið af reikn­ingum þýska hægriöfga­flokks­ins Val­kostur fyrir Þýska­land (AfD) virð­ast stang­ast á við fyrri yfir­lýs­ingar Alice Weidel, leið­toga flokks­ins, um ólög­legt kosn­inga­fram­lag, að því er frétta­mið­ill­inn Der Spiegel greindi frá í gær.

Nið­ur­stöð­urnar koma fram í safni meira en 420.000 innri tölvu­pósta AfD sem birtir voru á net­inu á mánu­dag. Blaða­menn vinna enn að því að fara yfir gögnin.

Tölvu­póst­arnir, sem Der Spiegel, sjón­varps­stöðin ZDF og aust­ur­ríska dag­blaðið Der Standard hafa greint, benda til þess að Weidel hafi vitað af fyr­ir­hug­uðum fjár­fram­lögum tengdum þing­kosn­inga­bar­áttu hennar árið 2017 nokkrum vikum fyrr en hún hefur áður sagt.

Samkvæmt frétt miðl­anna upp­lýsti Weidel þáver­andi gjald­kera flokks­ins í tölvu­pósti í júlí 2017 um að henni hefði verið til­kynnt um fjár­fram­lögin. Þegar hneykslið komst síðar upp sagði Weidel hins vegar að hún hefði fyrst frétt af fjár­mun­unum í sept­em­ber sama ár og hefði í kjöl­farið beitt sér fyrir því að þeir yrðu end­ur­greiddir.

Greiðsl­urnar námu alls 132.000 evrum, jafn­virði rúm­lega 18.000.000 króna, og fóru í gegnum milli­liði í Sviss. Málið varð eitt umfangs­mesta hneykslið vegna fjár­mögn­unar stjórn­mála­flokka í sögu AfD.

Stjórn­mála­flokkum í Þýska­landi er óheim­ilt að taka við fjár­hags­legum stuðn­ingi frá aðilum utan Evr­ópu­sam­bands­ins. AfD var sektaður um 396.000 evrur vegna máls­ins.

Flokk­ur­inn hefur sagt að hann muni ekki svara fyr­ir­spurnum um hvort tölvu­póst­arnir séu ósviknir og hvatt fjöl­miðla til að dreifa ekki efni sem teng­ist gagna­stuld­inum.

Tölvu­þrjót­arnir sögðu dag­blað­inu Die Zeit á fimmtu­dag að þeir hefðu birt gögnin, sem inni­halda einnig skjöl og per­sónu­legar upp­lýs­ingar, í nafni gagn­sæis og ábyrgðar gagn­vart almenn­ingi. Eigendur vef­síð­unnar þar sem gögnin voru birt svör­uðu ekki tölvu­pósti Reuters þar sem óskað var eftir athuga­semdum.

Gögnin sem lekið var gætu aukið þrýst­ing frá sumum stjórn­mála­mönnum og sam­tökum borg­ara­legs sam­fé­lags sem vilja banna flokk­inn. Þeir telja að AfD ógni lýð­ræð­is­legri stjórn­skipan Þýska­lands.

AfD, sem hefur mælst með mest fylgi í landskönn­unum, hafnar þeim ásök­unum og segir þær sprottnar af póli­tískum hvötum.

Þýska inn­an­lands­ör­ygg­is­stofn­unin, sem gæti lagt mat sitt til grund­vallar hugs­an­legu banni við flokknum, sagði að hún tjáði sig almennt ekki um innri starf­semi sína. Hún svar­aði því ekki hvort til stæði að rann­saka málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta