Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að úthluta styrkjum til 11 verkefna á sviði jafnréttismála. Heildarfjárhæð styrkjanna er 10 milljónir króna.
Styrkirnir voru auglýstir í byrjun september. Athygli var vakin á því að áhersla yrði lögð á verkefni og viðburði í þágu baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi. Alls bárust 25 umsóknir um styrki til ráðuneytisins.
Starfshópur í dómsmálaráðuneytinu fór yfir umsóknir og gerði tillögu um úthlutun til ráðherra.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir