ViðtalHarpa Kára er búin að vera sykurlaus í fimm mánuði -„Mitt mesta afrek það sem af er ári“6. nóvember 2021 Einn færasti förðunarfræðingur landsins, Harpa Káradóttir, er undir Stækkunargleri Mannlífs þessa vikuna. Það má með sanni segja að Harpa hafi í nógu að snúast, en hún er sjálfstætt starfandi förðunarfræðingur, rekur förðunarskólann Make-up studio Hörpu Kára, á sex ára gamla stelpu og eins árs gamla tvíbura stráka með Guðmundi, sambýlismanni sínum, svo það er án efa líf og fjör á...
ViðtalOpinská Þórunn Jarla: „Léttir að amma var með sífílis en ekki heilarýrnun, geðveiki eða alzheimer“.5. nóvember 2021 „Bærinn brennur“ er nýjasta bók Þórunnar Jörlu Valdimarsdóttur og hún segist ekkert vera að slást í jólabókaslagnum. „Hún er aðra vikuna í röð í 3. sæti á metsölulista yfir allar bækur. Ég veit eftir 26 bækur að bækur ganga allavegana,“ segir rithöfundurinn sem segist vera með átta bækur í legvatninu; ekki farvatninu. Hún ver almennt um fjórum tímum á dag...
ViðtalDagurinn þegar Wow brotlenti: „Þetta var tölvupóstur sem ég vonaði að myndi ekki berast“1. nóvember 2021 „Í ljósi þess að þetta gerðist í mars á Íslandi geri ég ráð fyrir að það hafi verið rok og rigning, sem fór vel með innihaldi tölvupóstsins. Síðasta hálmstráið af von fauk þar með út í marsrokið, ég hafði misst vinnuna, og nokkur hundruð manns að auki. WOW air var fallið, það sem féll þó aldrei var andinn. Fall WOW...
ViðtalVar með Bounty-þráhyggju – þóttist fara í þvottahúsið en hljóp út í sjoppu að kaupa súkkulaði31. október 2021 Borgarfulltrúinn Hildur Björnsdóttir er undir Stækkunargleri Mannlífs þessa vikuna. Hildur er lögfræðingur að mennt, en skipaði annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í kosningum til borgarstjórnar árið 2018 og hefur setið í borgarstjórn Reykjavíkur síðan. Áður hafði hún meðal annars starfað fyrir lögmannsstofuna LOGOS í London, verið pistlahöfundur í Fréttablaðinu og skipaði stöðu formanns Stúdentaráðs HÍ um tíma, þegar hún var...
ViðtalSædís jafnar sig eftir hármissi, nauðgun og neyðarkeisara: „Er mjög þakklát fyrir allt sem ég hef“23. október 2021 Sædís Bjarnadóttir er með ADHD, hún var með endurteknar candidasýkingar sem barn, er með sjálfsofnæmissjúkdóma, meðal annars alopecia sem veldur því að hún missti allt hárið, hún eignaðist son níu vikum fyrir tímann og hún glímir í dag við afleiðingar álagsins. Hún lítur björtum augum fram á veginn og segist nú hafa trú á sjálfri sér og að hún hafi...
ViðtalSigurjón Kjartansson er með hænur í garðinum: „Kannski felst lífsgátan í að díla við eigin drauga“22. október 2021 „Þetta er nú bara þannig að mig langaði til að verða frjáls maður á frjálsum markaði og vil vera meira sjálfstætt í minni vinnu. Það er ekkert sem útilokar það að ég haldi áfram að vinna eitthvað með RVK Studios. Ég er sem sagt bara að segja upp minni föstu stöðu þar sem þróunarstjóri,“ segir Sigurjón Kjartansson. Hann segir að...
ViðtalJónas gerðist grænkeri með fikti: „Mér leið eins og ég ætti að vera í algjörri örvæntingu“20. október 2021 Jónas Reynir Gunnarsson er ungur og efnilegur rithöfundur en hann hefur komið eins og hljóðlátur stormsveipur inn í bókmenntaheiminn undanfarin ár. Hafa bækur hans hlotið lof gagnrýnenda sem og bókmenntaverðlaun og jafnvel verið þýddar yfir á önnur tungumál. Svo er Jónas mikill húmoristi. Jónas ræddi við Mannlíf um heimabæinn, skáldskapinn, veganismann og húmorinn. Sem sagt um eitt og annað. Hinn...
ViðtalLungnakrabbi grasseraði hjá Ragnhildi: “Mér fannst ég vera í andaslitrunum”18. október 2021 „Fólk ætti helst ekki að byrja að reykja því það er erfitt fyrir alla að hætta og allir þeir sem eru að spekúlera í að hætta að reykja ættu að leita sér hjálpar; það eru til alls konar leiðir svo sem Reykingasíminn,“ segir Ragnhildur Benediktsdóttir sem hætti að reykja fyrir áratug og greindist svo með lungnakrabbamein árið 2018. „Já, þetta...
ViðtalLára læknir vill ekki tala undir rós: „Maðurinn minn sagði „jæja, núna verð ég skrímslið““13. október 2021 Lára G. Sigurðardóttir læknir skrifaði pistil undir fyrirsögninni „Hættulegt holdarfar“ sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Hann hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum og eru ekki allir sáttir. Svona er pistillinn sem birtist í blaðinu: „Þú hefur fitnað,“ sagði kærastinn ákveðinn á meðan við horfðum á bíómynd. Ég var sautján, hann nítján. Á þessum tíma vann ég í Fjarðarkaupum þar sem...
ViðtalSteinunn Eldflaug: „Ég kem úr kúka- og morðblokkinni í Bakkahverfinu í svindl-Breiðholti“6. október 2021 Steinunn Eldflaug Harðardóttir er raftónlistarmaður undir nafninu dj. flugvél og geimskip og listmálari sem hefur mikið látið að sér kveða í listasenunni á Íslandi síðustu ár. Nýverið bætti hún nýrri fjöður í hattinn, en hún getur nú titlað sig sem tölvuleikjahönnuð. Þessa dagana er hún í óða önn við að hanna spennandi tölvuleik, sem blaðamaður fékk að prófa heima hjá...
ViðtalÁsa missti manninn í sjóslysi en á von á barni 49 ára: „Ég átti bara eftir að faðma þig og kveðja“3. október 2021 Hún er 49 ára og á von á barni snemma á næsta ári; hún „ættleiddi“ fósturvísi í Lettlandi. Ása Dóra Finnbogadóttir grætur nú stundum af gleði en áður grét hún af sorg en hún missti sambýlismann sinn árið 2015 þegar hann drukknaði í sjóslysi. Hún missti fóstur gengin sjö mánuði á leið fyrir 20 árum og hún hefur misst marga...
ViðtalLára tónlistarkona fékk kvíðakast á Gatwick-flugvelli: „Ég endaði upp í rúmi í krassi“2. október 2021 „Að finna jafnvægið, en ég leita að jafnvægi í öllu. Jafnvægið er bara sífelldur dans og maður staldrar stutt við í miðjunni án þess að detta. En í dansinum felast töfrarnir.“ Lára Rúnardóttir tónlistarkona, kynjafræðingur og eigandi MÓA studio í Bolholti 4, kláraði nýverið sjöundu sólóplötu sína sem kemur út með vetrinum. Lára kom í stutt og einlægt spjall. Lára...
ViðtalSigurður tvívegis nálægt dauðanum: „Datt bara einu sinni í það en það rann ekki af mér í rúm 30 ár“28. september 2021 „Ég var einu sinni næstum búinn að yrkja mig út úr skóla. Þá tók ég The Raven eftir Edgar Allan Poe og snéri honum upp á skólameistara Menntaskólans á Akureyri. Svo fór ég til hans og spurði hvort ég mætti ekki lesa þetta á ljóðakvöldi, kvöldið eftir. Hann las þetta og fölnaði svo hægt og rólega og sagði svo orðrétt,...
ViðtalForsetinn heiðraði séra Pálma í kveðjumessunni: „Ekkert viss um að ég kæmist í gegnum þetta“27. september 2021 Séra Pálmi Matthíasson sá sunnudaginn 26. september um sína síðustu messu í Bústaðakirkju sem sóknarprestur þar. „Ég var með kveðjumessu í dag klukkan eitt og það var mjög tilfinningarík, hátíðleg og einlæg stund og komust færri að en vildu,“ segir hann seinni partinn þann dag. „Messan var í grunninn hefðbundin sunnudagsmessa en með meiri tónlist. Það var einsöngur Grétu Hergils,...
ViðtalKjartan Darri leikari var við dauðans dyr: „Ekki oft sem ég hafði séð pabba minn gráta“21. september 2021 Kjartan Darri Kristjánsson fær skilaboð á Messenger frá blaðamanni. Er hann til í viðtal? Hann svarar á Messenger: „Já, ég er á ferðalagi um landið, með leiksýningu, er að fara um borð í Baldur á eftir. En það er sennilega samband alla leið! Þú bjallar bara og við vonum að sambandið haldi.“ Baldur siglir rúmum klukkutíma síðar frá höfn í...
ViðtalKristrún Frostadóttir er ein skærasta stjarna kosningabaráttunnar: „Ég er svo mikil mamma“20. september 2021 „…eftir á að hyggja hafði það sjálfsagt talsverð áhrif á hvernig ég sá hlutverk kynjanna, mér fannst eðlilegast í heimi að konur gegndu sömu stöðum og karlar, þó ég hafi eins og margar konur stundum þurft að beita mér sérstaklega á karllægum vinnustöðum til að ná í gegn.“ Kristrún Frostadóttir er ein skærasta stjarna yfrstandandi kosningabaráttunnar. En hver er hún?...