1
Heimur

Fékk boð upp á tæpa tvo milljarða fyrir meydóminn

2
Heimur

Mikill fjöldi slasaður eftir stórfurðulegt atvik í verslunarmiðstöð

3
Fólk

Virðulegur húsakostur í Hafnarfirði settur á sölu

4
Innlent

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands

5
Heimur

Caleb Shomo kemur út úr skápnum

6
Heimur

17 létust í umferðarslysi

7
Heimur

Sjálfkeyrandi strætó var slysavaldur í Svíþjóð á fyrsta degi

8
Innlent

Fleiri berklasmit á Landspítalnum

9
Heimur

Fundu lík 12 ára drengs við árbakka í Frakklandi

10
Heimur

270 kílóa ísskápur féll á grínista

Til baka

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið

„Þetta verður söguleg stund í íslenskum afreksíþróttum ef þetta tekst“

Sigurgeir Svanbergsson
Sigurgeir SvanbergssonSigurgeir segir undirbúninginn ganga vel
Mynd: Aðsend

Sigurgeir Svanbergsson hefur undanfarnar vikur undirbúið sig af krafti fyrir það sem gæti orðið sögulegt afrek þegar hann hyggst synda alla leið niður Lagarfljót. Áætlað er að sundið fari fram í annarri viku júní og hefur enginn áður reynt slíkt afrek.

Upphaflega stóð til að leggja af stað í lok maí eða byrjun júní, en Sigurgeir segir fjölskyldulífið hafa haft áhrif á tímasetninguna.

„Eins og svo oft áður fór ég aðeins fram úr mér með dagsetningar,“ segir hann í samtali við Austurfrétt og bætir við að eiginkona hans, Sóley, hafi bent honum á að dóttir þeirra eigi afmæli 1. júní.

„Það væri mjög óhentugt ef ég myndi synda rétt fyrir það og vera gjörsamlega gagnslaus í undirbúningi afmælisins og á afmælisdaginn sjálfan,“ segir Sigurgeir og viðurkennir að hann yrði líklega „verra en gagnslaus“ eftir slíkt þrekvirki og bætir við: „Og yrði auka byrði fyrir Sóley sem væri þá sjálf ný búin að halda sér vakandi í rúmlega sólarhring til að sjá til þess að klikkaði maðurinn hennar gæti svamlað um Lagarfljótið áfallalaust.“

Hann segir undirbúninginn hingað til hafa gengið afar vel, með sérstaka áherslu á sundtækni og orkunýtingu, enda um gríðarlega vegalengd að ræða. Frá Fljótsdal niður að Lagarfossvirkjun eru nærri 60 kílómetrar.

Líkt og í fyrri sundum sínum mun Sigurgeir synda til styrktar Píeta-samtökin og fær aðstoð frá Björgunarsveitin Brimrún meðan á sundinu stendur.

Þá stefnir hann einnig á að halda sérstakt móttökupartý við endastöðina fyrir þá sem vilja fylgjast með þegar hann kemur í land eftir sundið.

„Þetta verður söguleg stund í íslenskum afreksíþróttum ef þetta tekst,“ segir Sigurgeir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Gabriel Ganley fallinn frá aðeins 22 ára að aldri
Heimur

Gabriel Ganley fallinn frá aðeins 22 ára að aldri

Málið er rannsakað sem grunsamlegt andlát.
Höttur dregur sig úr Gatorade-bikarnum vegna ferðakostnaðar
Sport

Höttur dregur sig úr Gatorade-bikarnum vegna ferðakostnaðar

Fullyrðir að Sarah Ferguson og Diddy hafi verið bólfélagar
Heimur

Fullyrðir að Sarah Ferguson og Diddy hafi verið bólfélagar

Nokkrir látnir eftir að lest klessti á skólarútu í Belgíu
Heimur

Nokkrir látnir eftir að lest klessti á skólarútu í Belgíu

Sérfræðingar vara við nýju pungtrendi
Heimur

Sérfræðingar vara við nýju pungtrendi

Fyrrum Luxor-meðlimur stofnar fyrirtæki
Peningar

Fyrrum Luxor-meðlimur stofnar fyrirtæki

Leitin að hinum tveggja ára Lucas sameinaði heilt samfélag
Heimur

Leitin að hinum tveggja ára Lucas sameinaði heilt samfélag

Selja hrífandi einbýli í Kópavogi
Myndir
Fólk

Selja hrífandi einbýli í Kópavogi

Óþekktur fauti braut rúðu
Innlent

Óþekktur fauti braut rúðu

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands
Innlent

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands

Einn í gæsluvarðhaldi eftir blóðug átök
Innlent

Einn í gæsluvarðhaldi eftir blóðug átök

Landið

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið
Landið

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið

„Þetta verður söguleg stund í íslenskum afreksíþróttum ef þetta tekst“
Kveikti í sér í kirkjugarði í Reykjanesbæ
Landið

Kveikti í sér í kirkjugarði í Reykjanesbæ

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra
Landið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra

Séra Arnaldur blessar Árborg
Landið

Séra Arnaldur blessar Árborg

Guðjón Hauks gerður að forstjóra
Landið

Guðjón Hauks gerður að forstjóra

Ungum Stöðfirðingi blöskraði hraðakstur og tók málin í sínar hendur
Landið

Ungum Stöðfirðingi blöskraði hraðakstur og tók málin í sínar hendur

Loka auglýsingu