Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Afplánar á Vernd vegna ungs aldurs

Fer ekki í almennt fangelsi

Vernd
Vernd Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Maðurinn sem var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að bana Bryndísi Klöru Birgis­dóttur og særa tvö önnur ungmenni á Menningar­nótt hefur hafið afplánun á áfanga­heimilinu Vernd í Laugardal. Hann var nýlega fluttur þangað af meðferðar­heimilinu Stuðlum.

Vísir greindi fyrst frá því að maðurinn, sem nýverið varð átján ára gamall, hafi hafið afplánun sína á áfanga­heimilinu í byrjun september. Það er rúmum tveimur árum eftir að hin örlaga­ríka árás átti sér stað í miðborg Reykja­víkur þann 24. ágúst. Bryndís Klara lést af sárum sínum á sjúkra­húsi sex dögum síðar, þann 30. ágúst.

Hámarksrefsing og rýmri reglur fyrir unga brotamenn

Málið vakti gríðar­lega athygli og hreyfði djúpt við íslensku samfélagi, þar sem bleikir bekkir hafa verið settir upp víða um land til minningar um Bryndísi Klöru. Jafnframt skapaðist mikil umræða um vaxandi ofbeldis­hegðun meðal ungmenna.

Gerandinn var sextán ára gamall þegar hann framdi verknaðinn og var dæmdur í átta ára fangelsi í fyrra. Samkvæmt íslenskum lögum er það hámarks­refsing sem hægt er að dæma einstakling ef glæpurinn er framinn fyrir átján ára aldur.

Þá gilda sérstakar reglur um reynslu­lausn ungra fanga. Einstaklingar sem eru 21 árs eða yngri geta sótt um reynslu­lausn eftir að hafa afplánað þriðjung refsitímans, sem þýðir að hann gæti losnað eftir tæp þrjú ár hið minnsta.

Strangar reglur en ríkt frjálsræði

Áfanga­heimilið Vernd starfar þannig að dvalar­gestir verða að dvelja þar á kvöldin og næturnar, en auk þess er það skilyrði að þeir stundi nám, vinnu eða meðferð sem fellur að mati stofnunarinnar.

DV fjallaði um afplánun mannsins í mars síðastliðnum, en þar kom fram að hann hefði þegar notið töluverðs frjáls­ræðis á meðan hann dvaldi á Stuðlum. Þar á meðal hafði hann full afnot af snjall­síma og sótti ökutíma.

Þótt mörgum kunni að þykja refsingin væg fyrir svo alvarlegan glæp, þá endur­speglar niður­staðan þá stefnu íslenskra dómstóla og fangelsis­mála­yfirvalda að setja endur­hæfingu, betrun og aðlögun ungra afbrota­manna í forgang fremur en harðar fangelsis­refsingar í almennum fangelsum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning