1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

4
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

5
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

6
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

7
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

8
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

9
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

10
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Til baka

Allt á suðupunkti í Silfrinu

Hiti í sjónvarpssal

Bergsteinn Sigurðsson
Bergsteinn þurfti að skerast í leikinn: „Leyfum fólki að klára“
Mynd: Facebook/Bergsteinn

Heitar umræður sköpuðust í sjónvarpssal Silfursins á RÚV þegar formenn stjórnmálaflokkanna mættust til að gera upp niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Bergsteinn Sigurðsson, umsjónarmaður Silfursins, þurfti að biðja formenn um að hemja sig þegar hitnaði í kolunum.

Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Í kjölfarið flaug neisti á milli formanna þegar rætt var um framtíð EES-samningsins og hina umdeildu bókun 35.

Í þættinum mættust þær Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins, Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins, Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins.

Kom ETS-málunum í skjól til 2030

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, hóf umræðuna á því að ræða mikilvægi hagsmunagæslu gagnvart Evrópu og benti á að hún væri búin að koma ETS-málinu, losunarkröfum ESB á flugsamgöngur, í skjól til ársins 2030. Sneri hún máli sínu því næst að innleiðingu á bókun 35 við EES-samninginn, sem fjallar um forgang EES-reglna gagnvart landslögum ef árekstur verður.Þorgerður varpaði boltanum yfir á andstæðinga ESB-aðildar og sagði:

„Kannski sé það best að annaðhvort Sigmundur eða Guðrún verði fyrstu flutningsmenn bókunar 35 til að sýna einarða samstöðu með EES-samningnum.“

Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, var augljóslega ekki skemmt yfir þessu útspili utanríkisráðherra. Hann greip fram í fyrir henni í miðri ræðu og spurði undrandi:

„Heyrðu, þú ert nú varla að fara að keyra á bókun 35 núna, þvert á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar? Það er ekki það sem fólk var að kalla eftir.“

Óttaðist að stuðningur við EES væri orðin tóm

Þorgerður Katrín svaraði Sigmundi fullum hálsi og gaf lítið fyrir gagnrýnina. Hún sagði andstöðuna sýna nákvæmlega það sem hana hafi grunað um málflutning þeirra sem vilja standa fyrir utan ESB en nýta EES-samninginn:

„Þetta er það sem ég óttaðist, að þetta hafi bara verið orðin tóm. Svo gott að skýla sig á bak við EES-samninginn. Nú á að fara að standa vörð um EES-samninginn, þá eru menn ekki tilbúnir í það. Mér finnst það umhugsunarefni.“

Þorgerður bætti því við að Ísland þyrfti að herða hagsmunagæslu sína í alþjóðlegu samhengi og horfa til annarra ríkja utan sambandsins. „Við þurfum að gera eins og Kanada er að gera. Kanada er að reyna að komast í skjól með því að fara í samningaviðræður við ESB.“

Uppþot í salnum

Við þessi orð fauk hressilega í formenn stjórnarandstöðuflokkanna sem sögðust ekki ætla að samþykkja slíka nálgun á evrópska löggjöf. Sigmundur Davíð hrópaði fram í:

„Við stöndum ekki vörð um EES-samninginn með þessum hætti!“

Bergsteinn Sigurðsson, stjórnandi Silfursins, þurfti að skerast í leikinn og reyna að róa mannskapinn áður en umræðan fór algjörlega úr böndunum:

„Leyfum fólki að klára.

Ég verð að halda þessum þætti áfram. Vilji þið sýna sjálfum ykkur og fólki heima þá virðingu að gefa mér orðið og ég skal svo útdeila því eftir því sem umræðan heldur áfram.“

Þorgerður tók aftur til máls og ítrekaði loks að verndun EES-samningsins og sjálfstæð hagsmunagæsla væri stærsta verkefnið sem blasti við íslenskri pólitík nú þegar dyrunum að fullri aðild hefði verið lokað.

Ljóst er að þrátt fyrir afgerandi niðurstöðu þjóðarinnar úr kjörklefanum um helgina er Evrópumálinu og deilunum um fullveldi landsins fjarri því lokið á hinu pólitíska sviði.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

„Hér eru börn á ferð á hverjum degi og öryggi þeirra verður að vera í fyrirrúmi“
Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Loka auglýsingu