Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Alvarleg staða á fjölmiðlamarkaði

Kalla eftir tafar­lausum aðgerðum stjórn­valda

Aðeins ein sjónvarpsfréttastofa og eitt prentað dagblað eftir á Íslandi
Aðeins ein sjón­varps­frétta­stofa og eitt prentað dag­blað eftir á Íslandi Mynd: Unsplash/Sam Mcghee

Stjórn Blaðamanna­félags Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum og miklum vonbrigðum með þá ákvörðun stjórnar Sýnar að leggja niður sjónvarps­fréttir Stöðvar 2 frá og með deginum í dag, 1. september. Markar þetta endalok nærri 40 ára sögu frétta­útsendinga miðilsins, sem um áratuga­skeið hefur veitt Ríkis­útvarpinu mikilvæga samkeppni.

Í yfir­lýsingu frá félaginu segir að ákvörðunin sé mikið högg fyrir íslenska fjölmiðla­flóru og lýðræðis­lega umræðu. Sú staða sé nú komin upp að á Íslandi sé aðeins starfrækt eitt prentað dagblað og einungis einn fjöl­miðill, ríkis­miðillinn, sem sendir út fréttir í sjónvarpi.

Ekki bara breyting á miðlunarformi

Blaðamanna­félagið bendir á að afleiðingar lokunarinnar séu alvarlegar; færri fréttir verði til, fjöl­breytni minnki og leiðum almennings til upplýsinga­öflunar fækki. Sjónvarps­fréttir gegni sérstöku hlutverki á tímum aukinnar skautunar, þar sem ritstýrðir miðlar sem starfa eftir faglegum viðmiðum séu nauðsyn­legir. Þá sé rík þörf á fleiri en einum öflugum frétta­miðli með mannafla og reynslu til að miðla upplýsingum hratt þegar alvarlegir atburðir eða neyðar­ástand skapast.

Uppsagnirnar eru jafnframt sagðar mikið áfall fyrir það starfs­fólk sem nú missir vinnuna, en með þeim hverfi mikil þekking og fagmennska sem byggst hefur upp í tæp fjögur áratuga­skeið.

Kallað eftir tafarlausum viðbrögðum

Staða íslenskra fjölmiðla hefur verið viðkvæm um árabil og segir Blaðamanna­félagið að þróunin kalli á sterk og sameiginleg viðbrögð úr öllum áttum samfélagsins til að vernda sjálf­stæða blaða­mennsku:

  • Stjórn­völd þurfa að ráðast í frekari aðgerðir til að styðja við rekstrar­umhverfi miðla.
  • Fyrirtæki eru hvött til að auglýsa í auknum mæli í íslenskum frétta­miðlum.
  • Eigendur fjölmiðla verða að sýna samfélags­lega ábyrgð sína.
  • Almenningur þarf að styðja við bakið á faglegri miðlun með áskriftum.

„Fjöl­breyttir, öflugir og sjálf­stæðir ritstýrðir fjöl­miðlar eru ein af grunn­stoðum lýðræðisins,“ segir í yfir­lýsingunni og ljóst er að rekstrar­skilyrðin eins og þau eru í dag ógna þeirri grunnstoð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning