
Andres Cedres Armas hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni eftir að hafa ráðist gegn tveimur lögreglumönnum við skyldustörf.
Atvikið átti sér stað að kvöldi 12. október 2024 á bílastæði fyrir framan verslun í Kópavogi. Samkvæmt ákæru klóraði Andres annan lögreglumanninn á hægri framhandlegg og beit hinn í hægri hönd. Lögreglumennirnir voru við skyldustörf þegar atvikið varð.
Andres játaði brot sín skýlaust.
Í dóminum kemur fram að Andres hafi áður gengist undir 475 þúsund króna sektargerð hjá lögreglu í janúar á þessu ári. Þá var hann jafnframt sviptur ökurétti í átján mánuði vegna meðal annars aksturs undir áhrifum, aksturs án gildra ökuréttinda og fíkniefnalagabrots.
Við ákvörðun refsingar var skýlaus játning Andres metin honum til málsbóta auk þess sem fram kom fyrir dómi að hann iðraðist gjörða sinna. Á móti var litið til þess að brotið beindist gegn lögreglumönnum við skyldustörf, sem dómurinn taldi nauðsynlegt að líta alvarlegum augum.
Refsing Andres var ákveðin tveggja mánaða fangelsi en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Haldi hann almennt skilorð á þeim tíma fellur refsingin niður.