Anna Lilja Ragnarsdóttir hefur verið sett sýslumaður á Suðurlandi og Sæunn Magnúsdóttir sýslumaður í Vestmannaeyjum. Setningarnar tóku gildi 22. ágúst og gilda til ársloka 2026.
Ráðstöfunin er liður í undirbúningi fyrir sameiningu sýslumannsembættanna tveggja, sem tekur gildi 1. janúar 2027. Henni er ætlað að tryggja stöðugleika og samfellu í stjórnun og starfsemi embættanna fram að sameiningunni.
Kristín Þórðardóttir, sem áður gegndi embætti sýslumanns á Suðurlandi og var jafnframt settur sýslumaður í Vestmannaeyjum, hefur verið skipuð sýslumaður hins nýja sameinaða embættis. Hún tók við embættinu 21. ágúst.
Undanfarna mánuði hefur dómsmálaráðuneytið unnið að undirbúningi sameiningarinnar í samstarfi við sýslumannsembætti landsins. Um er að ræða umfangsmikla stjórnsýslubreytingu og er undirbúningnum ætlað að tryggja farsæla yfirfærslu þegar nýtt embætti tekur formlega til starfa um áramótin.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir